Síminn seldur án skilyrða 11. september 2004 00:01
Forsætisráðherra segir ríkisstjórnina stefna að sölu Landssímans án skilyrða. Hins vegar bárust skýr skilaboð í gær frá þungaviktarmönnum innan Framsóknarflokksins um að höfuðatriði væri að dreifikerfi um land allt væri tryggt áður en fyrirtækið yrði selt. Á fundi framsóknarmanna í Borgarnesi í gær kom skýrt fram í máli Hjálmars Árnasonar, formanns þingflokksins, að sett yrðu þau skilyrði fyrir sölu Landssímans að uppbyggingu dreifikerfis yrði lokið þannig að landsmenn allir hafi jafnan aðgang að nútíma fjarskiptum. Hann sagði þetta höfuðatriði og meginforsendu fyrir samþykkt þingflokks framsóknarmanna. Davíð Oddsson forsætisráðherra segir engin slík skilyrði hafa verið sett innan ríkisstjórarinnar og málið var ekki til umræðu á ríkisstjórnarfundi í dag. Þegar stólaskiptin verði í Stjórnarráðinu muni formennska í einkavæðinganefndinni fylgja Framsóknarflokknum því það hafi verið á könnu forsætisráðherra. Sú endurskipulagning getur valdið því að dráttur verði á sölu Landssímans að sögn Davíðs en stefnan er samt sem áður óbreytt: Landssíminn verður seldur. Spurður hvort það rýri ekki verðgildi fyrirtækis sem eigi að fara í einkaeigu að það þurfi að uppfylla skilyrði sem megi líkja við byggðastefnu, segir forsætisráðherra að honum hafi ekki verið sett nein slík skilyrði og að þau hafi ekkert verið rædd.
Fréttir Innlent Mest lesið Ógn á galakvöldverði og forsetinn fluttur á brott Erlent Bóndakonan á Bakkakoti er látin Innlent Hlaut alvarlega höfuðáverka eftir árekstur á rafhlaupahjóli Erlent Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans Innlent „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Innlent Trump lífgar í gömlum glæðum Falklandseyjastríðsins fyrir konunglega heimsókn Erlent Orbán hættir á þingi Erlent Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Innlent Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Innlent Gerðu árás á mörgum stöðum á sama tíma Erlent Fleiri fréttir Bóndakonan á Bakkakoti er látin Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Sjá meira