Innlent

Davíð hvergi hættur

Davíð Oddsson, fráfarandi forsætisráðherra, ætlar ekki að hætta afskiptum af stjórnmálum þrátt fyrir erfið veikindi í sumar og ætlar bjóða sig aftur fram til formanns Sjálfstæðisflokksins á næsta ári. Hann stjórnaði sínum fyrsta og jafnframt næstsíðasta ríkisstjórnarfundi í gærmorgun eftir erfið veikindi. Davíð lætur af embætti forsætisráðherra á miðvikudaginn kemur og tekur við stjórnartaumum í utanríkisráðuneytinu í staðinn. Í viðtali sem Morgunblaðið birtir við hann í dag kemur fram að þar ætli hann að leggja áherslu á varnarmál landsins og telur líklegt að í þeim málum náist góð lending eftir viðræður hans við forseta Bandaríkjanna. Davíð leggur áherslu á að þrátt fyrir stólaskipti hans og Halldórs, sé ríkisstjórnin sem fyrr sú sama og engin breyting verði á efnahagsmálum eða öðrum slíkum málaflokkum. Í viðtalinu gagnrýnir Davíð forseta landsins fyrir framgöngu hans í fjölmiðlamálinu og segir alla uppákomuna vegna málsins eina þá verstu í sögu lýðveldisins. Hann segir enn vilja innan ríkisstjórnarinnar til að setja lög um fjölmiðla.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×