Krani fellur á hús 30. ágúst 2004 00:01
Mildi þykir að ekki urðu slys á fólki þegar 50 tonna byggingakrani féll á nýbyggingu í Hafnarfirði síðdegis. Tuttugu manns voru við vinnu í húsinu þegar slysið varð. Það var hávaðarok í Hafnarfirði á fimmta tímanum, þegar kraninn, sem er í eigu byggingafyrirtækisins Feðgar ehf., tvíbrotnaði yfir fimm hæða íbúðarblokkina við Daggarvelli. Tuttugu manna hópur var við vinnu í húsinu þegar kraninn féll og aðeins einn þeirra hlaut minniháttar áverka. Þeim var eðlilega afar brugðið, líkt og kranamanninum Daníel, sem telja má víst að sé ekki feigur, en hann sat í bifreið, í minna en meters fjarlægð frá krananum, þar sem han skall til jarðar. Hann segist hafa orðið nokkuð skelkaður enda vinnur hann við þessi tæki alla daga. Hann segir að eftir mikla vindhviðu hafi turninn einfaldlega gefið sig. Enn er á huldu hvað varð þess valdandi að kraninn gaf sig, en slíkum tækjum er haldið niðri með massívum steypuklumpum og þeir eiga að sjálfsögðu að geta staðið af sér miklar vindhviður. Rannsóknardeild lögreglunnar í Hafnarfirði og Vinnueftirlitið munu meðal annars kanna hvort tækjabúnaður í krananum hafi gefið sig eða hvort um mistök hafi verið að ræða. Tjón vegna skemmda á byggingunni er ekki talið mikið, en það gefur auga leið að fimmtíu tonna kraninn sem metinn er á á um átta milljónir króna verður ekki notaður aftur.
Fréttir Innlent Mest lesið Húðlæknir bregst við brúnkutískunni Innlent „Þú getur ekkert forðað þér, það verður bara að takast á við þetta“ Innlent Þremur skemmtistöðum lokað í sameiginlegum aðgerðum Innlent „Afleiðingarnar muni vara í einhver ár jafnvel“ Erlent „Okkur er gert að vera áfram í drullusvaðinu á Sævarhöfða“ Innlent Bandaríkjastjórn lokar á aðgang erlendra ríkisborgara Innlent Geirdís geti leitað á tjaldsvæði og greitt markaðsverð Innlent Þrjár aflýsingar hjá Icelandair Innlent Áfall fyrir bæjarfélagið Innlent Sæbrautargátan leyst: Það er 58, ekki 60 - en samt ekki alveg Innlent Fleiri fréttir Fleiri hlynntir en andvígir samkvæmt nýrri könnun Geirdís geti leitað á tjaldsvæði og greitt markaðsverð Krapvélar í yfirvinnu í góða veðrinu Bandaríkjastjórn lokar á aðgang erlendra ríkisborgara Áfall fyrir bæjarfélagið „Okkur er gert að vera áfram í drullusvaðinu á Sævarhöfða“ Lokað vegna skorts á starfsleyfi „Við horfum bjartsýn fram á veg“ Þrjár aflýsingar hjá Icelandair Hægt að skoða þyrlur og sprengjuleitarbúnað Gæslunnar Viðgerð Herjólfs dregst um þrjár vikur: „Vonum að þetta fari nú að verða búið“ Tilgangslaust stríð og æfir hjólabúar „Þú getur ekkert forðað þér, það verður bara að takast á við þetta“ Hlaðvarparar hrósa sigri: „Logi er greinilega nettur gæi“ Bein útsending: Brautskráning Háskóla Íslands Húðlæknir bregst við brúnkutískunni Þremur skemmtistöðum lokað í sameiginlegum aðgerðum Eldhaf gaus upp í vélarrúmi og skipið rak í þrjá tíma Sæbrautargátan leyst: Það er 58, ekki 60 - en samt ekki alveg Ríkisstjórnin ýmist bensínlaus bátur eða á leikskóla í platheimi Friðarsamkomulag, rauð ljós á Sæbraut og ógeðfelldar lýsingar í dómsal Njósnarar enn í lögsögunni Felldi loks tár þegar andlát eiginmannsins var rætt „Af hverju má ég vera í Hveragerði en Grindvíkingar ekki í Grindavík?“ Hittust átta sinnum til að úrskurða um risaeðlubeinin Bólar ekkert á ályktun ungra miðflokksmanna Kviknaði í raftæki Samgönguáætlun samþykkt á Alþingi Staðfesta synjun SÍ: „Þetta er ekki bara fyrir Jón Atla“ Eigi von á tæplega 200 þúsund gestum Sjá meira