Sex sækja um Hæstaréttardómara 30. ágúst 2004 00:01
Að minnsta kosti sex sækja um stöðu Hæstaréttardómara í stað Péturs K. Hafstein, sem lætur af embætti 1. október, en frestur til að sækja um stöðuna rann út um helgina. Nöfn þeirra sem sækja um stöðu Hæstaréttardómara verða gerð opinber klukkan 4 í dag. Fréttastofan hefur áður greint frá því að á meðal umsækjenda eru Jón Steinar Gunnlaugsson, hæstaréttarlögmaður og lagaprófessor, Eiríkur Tómasson, lagaprófessor, Hjördís Hákonardóttir, dómstjóri, og Allan Vagn Magnússon, héraðsdómari. Í Morgunblaðinu í dag er greint frá því að Stefán Már Stefánsson, lagaprófessor við Háskóla Íslands, og Eggert Óskarsson, héraðsdómari, sæki einnig um stöðuna. Jón Steinar skilaði inn umsókn langfyrstur, eða meira en viku áður en frestur rann út. Innan lögmannastéttar var það útspil skilið sem vísbending um að Jón Steinar yrði fyrir valinu. Nú, þegar hópur umsækjenda er skoðaður eru þó færri sem vilja leggja hatt sinn að veði en áður, hvað þetta varðar. Eiríkur og Hjördís sóttu um stöðu hæstaréttardómara í fyrra, en þá skipaði Björn Bjarnason, dómsmálaráðherra, Ólaf Börk Þorvaldsson í embættið. Þá var Eiríkur annar þeirra sem Hæstiréttur taldi heppilegastan í stöðuna, en hinn var Ragnar Hall, sem gagnrýndi á dögunum í fréttum Bylgjunnar hvernig staðið var að málum í fyrra. Eiríkur, Ragnar og Jakob Möller vísuðu málinu til umboðsmanns Alþingis, sem gerði athugasemdir við hvernig skipað var í stöðuna. Björn Bjarnason gat þess á þeim tíma að hann myndi taka mið af athugasemdum umboðsmanns, en ekki náðist í Björn í morgun til að fá nánari svör um hvernig hann hyggðist gera það. Hjördís Hákonardóttir kærði skipan Ólafs Barkar í fyrra til kærunefndar jafnréttismála, sem komst að þeirri niðurstöðu að á henni hefðu verið brotin jafnréttislög. Ekki hefur enn verið ákveðið hverjar verða lyktir þeirrar niðurstöðu, svo sem, hvort hún verður kærð til dómstóla.
Fréttir Innlent Mest lesið Ógn á galakvöldverði og forsetinn fluttur á brott Erlent Bóndakonan á Bakkakoti er látin Innlent Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Innlent Hlaut alvarlega höfuðáverka eftir árekstur á rafhlaupahjóli Erlent Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans Innlent Trump lífgar í gömlum glæðum Falklandseyjastríðsins fyrir konunglega heimsókn Erlent Ölvun, vopnaburður og áfengishnupl Innlent „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Innlent Orbán hættir á þingi Erlent Gerðu árás á mörgum stöðum á sama tíma Erlent Fleiri fréttir Ölvun, vopnaburður og áfengishnupl Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Bóndakonan á Bakkakoti er látin Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sjá meira