Ekkert stöðvar Chelsea 28. desember 2004 00:01
Chelsea virðast ekkert ætla að gefa eftir í baráttunni um enska meistaratitilinn og eftir 0-2 sigur á Portsmouth í dag hefur liðið átta stiga forystu á toppi deildarinnar. Arsenal á reyndar leik inni og getur minnkað forystuna niður í fimm stig með sigri á Newcastle á annað kvöld. Eiður Smári Guðjohnsen byrjaði á varamannabekk Chelsea í gær en kom inn á fyrir Didier Drogba á 58. mínútu. Það var fyrst þá sem hlutirnir fóru að ganga hjá liðinu og náði Arjen Robben loks að brjóta ísinn þegar 10 mínútur voru til leiksloka. Sjaldséður Joe Cole náði síðan að bæta við öðru marki á lokamínútunum eftir að hafa komið inn á sem varamaður skömmu áður. Hermann Hreiðarsson var í sviðsljósinu í frábærum sigri Charlton á spútnikliði Everton. Fyrst fékk hann vænt olnbogaskot í andlitið frá hinum skapbráða Duncan Ferguson sem var í kjölfarið verðlaunaður með rauðu spjaldi. Hermann skoraði síðan annað mark Charlton með góðu vinstrifótarskoti eftir hornspyrnu Danny Murphy. Manchester United vann gríðarlega mikilvægan sigur gegn Aston Villa í kvöld. Ryan Giggs var í miklu stuði í leiknum og skoraði eina mark leiksins með góðu skoti undir lok fyrri hálfleiks. Liverpool er að skríða upp töfluna og í gær hafði meiðslum strjáð liðið sigur gegn Southampton á heimavelli. Það var Florent Sinama Pongolle sem skoraði eina mark leiksins. Joseph-Desire Job kom inn í byrjunarlið Middlesbrough á nýjan leik og þakkaði traustið með því að skora bæði mörk liðsins í auðveldum sigri á Norwich. Þá komst Tottenham aftur niður á jörðina eftir fimm sigurleiki í röð. Liðið náði aðeins jafntefli gegn Crystal Palace á heimavelli sínum.
Enski boltinn Íslenski boltinn Mest lesið Fyrstur til að fá rautt fyrir að hylja munninn en Tyrkir úr leik á HM Fótbolti Skemmdi búningsklefann í klúbbhúsinu í fyrra en setti met í ár Golf Leggja inn kvörtun til FIFA vegna Messi Fótbolti Segir að Liverpool verði að berjast um titilinn á fyrsta ári Iraola Enski boltinn Gervigreindar-Maradona hneykslar marga í Argentínu Fótbolti Fyrrum markakóngur Seríu A lést 58 ára gamall Fótbolti Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Handbolti Cunha með tvö og Brassar höfðu það náðugt Fótbolti Ætlar að sýna öllum heiminum hvað systir hans heitin sá í honum Fótbolti FIFA breytti því hvernig stöðutöflur virka á HM Fótbolti Fleiri fréttir Maður dagsins á HM: „Svikari“ af miklum markvarðaættum Gervigreindar-Maradona hneykslar marga í Argentínu Fyrstur til að fá rautt fyrir að hylja munninn en Tyrkir úr leik á HM Cunha með tvö og Brassar höfðu það náðugt Ætlar að sýna öllum heiminum hvað systir hans heitin sá í honum Dagskráin: Spennan magnast á Opna bandaríska risamótinu í golfi Zlatan trúir því að Bandaríkin geti orðið heimsmeistari Marokkómenn skoruðu sigurmarkið eftir 71 sekúndu Segir að Liverpool verði að berjast um titilinn á fyrsta ári Iraola Skemmdi búningsklefann í klúbbhúsinu í fyrra en setti met í ár Fyrrum markakóngur Seríu A lést 58 ára gamall Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Skotar og Marokkóar berjast um sæti í 32-liða úrslitum Njarðvíkingar stöðvuðu sigurgöngu Leiknisliðsins Bandaríkjamenn með fullt hús eftir tvo leiki Martin og félagar tryggðu sér oddaleik um titilinn FIFA breytti því hvernig stöðutöflur virka á HM Leggja inn kvörtun til FIFA vegna Messi Gamla Íslendingafélagið á barmi gjaldþrots Ólympíuverðlaunahafi í langt bann vegna lyfjamisnotkunar Gunnlaugur Árni hefur lokið keppni á US Open Gunnlaugur þurfti að slá yfir hús og fullt af fólki til að ná fugli Perla Sól skiptir um skóla og er boðin velkomin í fenið á Flórída Fékk tveggja högga refsingu fyrir reiðiskast á US Open Freyr varð dapur: „Fáir en valdamiklir menn sem fannst þetta góð hugmynd“ Verður hann samt íþróttamaður ársins? Hakimi dreginn fyrir dóm: „Aldrei orðið mál ef ég væri ekki frægur“ Miður sín eftir brotið og kom í klefann að biðjast afsökunar Birtir myndband af því þegar fyrirliði KR brotnaði á báðum Sumarmótin: TM mótið í Vestmannaeyjum Sjá meira