Fimm stiga sigur á Englandi 28. desember 2004 00:01
Íslenska kvennalandsliðið vann fimm stiga sigur á Englandi, 67-72, í Nottingham í gækvöld eftir að hafa haft tveggja stiga forskot í hálfleik, 27-25. Íslenska liðið vann fjórða og síðasta leikhlutann 24-13 og þar með fyrri af tveimur landsleikjum þjóðanna en liðin mætast aftur í kvöld og þá í Sheffield. Hin 16 ára Helena Sverrisdóttir var allt í öllu í íslenska liðinu með 19 stig, 10 stoðsendingar og 7 stolna bolta en þær Erla Þorsteinsdóttir og Birna Valgarðsdóttir skoruðu báðar 11 stig. Það munaði einnig mikið um framlög Keflvíkinganna tveggja, Rannveigar Randversdóttir og Maríu Ben Erlingsdóttur af bekknum en saman skoruðu þær 17 stig og nýttu 8 af 14 skotum sínum. "Ég var mjög ánægður með karakterinn í liðinu, að klára leikinn þegar við vorum búin að missa þær aðeins fram úr okkur. Við komum til baka og spilum alveg gríðarlega vel þrátt fyrir að vera að spila fyrir fullu húsi áhorfenda sem voru allir á bandi Englendinga. Við erum að sýna það í þessum leik að við erum í framför. Við erum að fara út með ungt lið og erum að ná góðum úrslitum," sagði Ívar Ásgrímsson, landsliðsþjálfari kvenna, í viðtali eftir leik. Stig íslenska liðsins í leiknum: Helena Sverrisdóttir 19 (10 stoðs. 7 stolnir, 5 fráköst, 31 mín.) Birna Valgarðsdóttir 11 (5 fráköst, 4 stolnir, 29 mín.) Erla Þorsteinsdóttir 11 (7 fráköst, 32 mín.) Rannveig Randversdóttir 9 (18 mín.) Signý Hermannsdóttir 8 (6 fráköst, 2 varin skot, 28 mín.) María Ben Erlingsdóttir 8 (16 mín.) Svava Ósk Stefánsdóttir 2 (7 mín.) Hildur Sigurðardóttir 2 (16 mín.) Helga Jónasdóttir 2 (3 mín.) Alda Leif Jónsdóttir (13 mín.) og Bryndís Guðmundsdóttir (2 mín.) léku einnig en náðu ekki að skora. Alda Leif fór útaf með 5 villur. Ingibjörg Elva Vilbergsdóttir hvíldi í þessum leik en kemur inn fyrir leikinn í Sheffield á morgun.
Körfubolti Mest lesið Sá besti í heimi opnar sig: Þetta er ekki fullnægjandi líf Golf Dæmdur fyrir að myrða tengdaföður sinn Sport Meistaramót Golfklúbbs Grindavíkur átti að byrja í dag: „Við hinkrum aðeins“ Golf Yfirgefur Aþenu og semur við nýliðana Körfubolti Aron Pálmars fær kveðjuleik í Kaplakrika og Veszprém mætir Handbolti Steven Gerrard orðinn afi Enski boltinn Fyrrum dýrasti enski leikmaðurinn mættur í F-deildina Fótbolti Hefur ekki hugmynd hvar Ólympíugullið hans er niðurkomið Golf Cecilía Rán fékk á sig fastasta skot EM til þessa Fótbolti Stólarnir verða með í Evrópukeppninni í vetur Körfubolti Fleiri fréttir Aukinn áhugi á EM þrátt fyrir samkeppni við FIFA Aron Pálmars fær kveðjuleik í Kaplakrika og Veszprém mætir Cecilía Rán fékk á sig fastasta skot EM til þessa Stólarnir verða með í Evrópukeppninni í vetur Hefur ekki hugmynd hvar Ólympíugullið hans er niðurkomið „Getum ekki beðið eftir að sjá þig gera kraftaverk“ Meistaramót Golfklúbbs Grindavíkur átti að byrja í dag: „Við hinkrum aðeins“ Sá besti í heimi opnar sig: Þetta er ekki fullnægjandi líf Steven Gerrard orðinn afi Yfirgefur Aþenu og semur við nýliðana Dæmdur fyrir að myrða tengdaföður sinn Dagskráin í dag: Snóker og golf, aftur Fyrrum dýrasti enski leikmaðurinn mættur í F-deildina Stuðningsmenn Palace mótmæla ákvörðun UEFA Elvar Már til Póllands „Við erum alls ekki hættir, þetta er rétt að byrja“ Erlendum leikmönnum Ármanns fækkar um einn Cifuentes tekur við Leicester Sænsku meistararnir örugglega áfram Uppgjörið: Breiðablik - Egnatia 5-0 | Algjör einstefna á Kópavogsvelli Oladipo með augastað á endurkomu Enginn Kobe Bryant á topp tíu yfir þá bestu í sögunni Elvis snúinn aftur „Allt orðið eðlilegt á ný“ Liverpool tilbúið að slá metið aftur Ásthildur skoraði átján mörk í stórsigri íslensku stelpnanna Púttaðstaða eins og hjá Tiger og Rory Seldu fyrir 44 milljónir evrur meira en þeir borguðu Man. Utd ári áður „Ekki jafn miklar þreifingar og ekki jafn lokaður leikur“ KR-ingar hafa enn ekki unnið útileik í sumar Sjá meira