Sport

Fimm íslenskir sundmenn á EM

Fimm íslenskir sundmenn munu taka þátt á Evrópumeistaramótinu í 25m metra laug sem fram fer í Vín dagana 9.-12. desember. Mótið fer fram í stórri tónleikahöll, Vienna City Hall, en þar hafa mótshaldarar komið fyrir glæsilegri átta brauta keppnislaug. Höllin mun taka 3600 áhorfendur eftir að laugin er komin upp, 500 keppendur og 200 fréttamenn í sæti. Íslensku keppendurnir eru þau Anja Ríkey Jakobsdóttir úr Ægir, Eva Hannesdóttir úr KR, Erla Dögg Haraldsdóttir úr ÍBR, Kolbrún ÝR Kristjánsdóttir úr ÍA og Jakob Jóhann SVeinsson úr Ægir.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×