Stanslausar æfingar að skila sér 26. nóvember 2004 00:01 "
Ég er mjög ánægður enda undanfarin ár kannski ekki verið ýkja góð hjá mér og ég gæli við að ná að halda þessu formi áfram," segir Björgvin Björgvinsson, skíðamaður frá Dalvík, en hann gerði sér lítið fyrir og náði fimmta sæti á sterku móti sem fram fór innanhúss í Hollandi í vikunni. Er árangur Björgvins sá næstbesti sem íslenskur skíðamaður hefur náð erlendis en kollegi Björgvins að norðan, Kristinn Björnsson frá Ólafsfirði, vann tvívegis sigur á Evrópubikarmótum á sínum ferli. "Einhvern veginn gekk allt upp hjá mér en það er tilfinning sem ég hef ekki fundið um langa hríð og ég er mjög bjartsýnn á að mér takist að halda þessum dampi í næsta móti. Fyrst og fremst er ánægjulegt að finna að allur sá tími sem hefur farið í stanslausar æfingar síðan í vor er að skila sér og ég er vaxandi sem skíðamaður." Fimmta sætið hjá Björgvini er enn betri árangur í ljósi þess að hann var 51. í rásröðinni en því aftar sem byrjað er því minni möguleikar á að ná góðum árangri enda versna aðstæður í brautinni því fleiri sem hana skíða. Björgvin tók einnig þátt í heimsbikarmóti sem fram fór í Sölden í Austurríki fyrir skömmu en féll í brautinni þar og lauk ekki keppni. Furðu vekur að skíðamót skuli yfirleitt vera haldin í Hollandi þar sem holt og hæðir eru vægast sagt af skornum skammti en til að vinna bug á því hafa Hollendingar byggt svokölluð skíðahús og þar fór umrædd keppni fram. Björgvin var himinlifandi með aðstöðuna og segir engan mun hafa fundið á því að keppa innanhúss og í brekkum utanhúss. "Þetta er sams konar tilfinning og að vera í alvöru brekkum og fyrir utan þakið á húsinu er enginn munur á að keppa inni eða úti. Mér skilst að þetta sé framtíðin í skíðaíþróttinni og mér finnst sjálfssagt að það verði skoðað heima á Íslandi að reisa svona hús. Það yrði lyftistöng fyrir íþróttina og hægt að skíða allan ársins hring."
Íþróttir Mest lesið Þorsteinn Roy fyrstur í mark annað árið í röð Sport Þóra grætur í koddann ef Þorsteinn verður áfram með liðið Fótbolti Segir dóttur sína hafa gert mistök með því að velja íslenska landsliðið Fótbolti Ekki pláss fyrir Rúnar í flugvélinni: „Ég fórnaði mér í þetta“ Íslenski boltinn Uppgjörið: Vestri í úrslit í fyrsta skipti Íslenski boltinn Sigurvegarinn Þorsteinn: „Það má ekki á Íslandi“ Sport Mátti ekki kaupa íbúð Babe Ruth Sport Danska þjóðin í áfalli: „Verra en okkar versta martröð“ Sport Segist „hafa dáið fjórum sinnum“ og er nánast óþekkjanlegur í dag Sport „Síðasti leggurinn var helvíti þungur“ Sport Fleiri fréttir Enginn sá tölvupóstinn frá UEFA Konate gæti farið frítt frá Liverpool Elías Már skrifar undir hjá kínversku liði Hákon skoraði tvö í vináttuleik Louis Van Gaal hefur sigrast á krabbameini Landslið Íslands í golfi gerði það gott á EM Leik lokið: Pólland 3 - 2 Danmörk | Bæði lið í leit að fyrstu stigunum Leik lokið: Svíþjóð 4 - 1 Þýskaland | Úrslitaleikur um efsta sætið Þór fer upp í umspilssæti Arnór Sigurðsson hafði betur í Íslendingaslagnum Rústaði úrslitunum á Wimbledon „Síðasti leggurinn var helvíti þungur“ Njarðvík slapp með stig frá Húsavík Sigurvegarinn Þorsteinn: „Það má ekki á Íslandi“ Onana frá næstu vikurnar Stjarna Cavs trúlofuð Grammy verðlaunahafa Doncic fékk að vita af sölunni en ekki LeBron Uppgjörið: Vestri í úrslit í fyrsta skipti Ánægður með Arnar og er klár í haustið Skellur í fyrsta leik hjá guttunum okkar „Þorsteinn er allt of lengi að bregðast við“ Ekki pláss fyrir Rúnar í flugvélinni: „Ég fórnaði mér í þetta“ Diljá Ýr búin að semja við Brann Þorsteinn Roy fyrstur í mark annað árið í röð Ísköld Clark stýrði sókninni eins og hershöfðingi Hvaðan koma peningarnir sem Tottenham er að eyða? „Nýtti reynsluna úr vindinum heima til að halda þolinmæði“ Líkti Cooper Flagg við Kobe Bryant Dagskráin í dag: Meira, meira golf Elín Jóna ólétt og verður ekki með á HM Sjá meira