Sport

Arsenal verður að vinna

Átta leikir fara fram í meistaradeild Evrópu í fótbolta í kvöld. Línur eru farnar að skýrast en af þessum sextán liðum sem keppa í kvöld hafa tvö lið, Inter Milan og Chelsea tryggt sér sæti í sextán lið úrslitum. Barcelona og AC Milan eiga bæði heimaleik í F-riðli og með jafntefli eða sigri tryggt sér sæti í næstu umferð og sömu sögu er að segja af þýska liðinu Werder Bremen sem þarf að vinna Inter Milan. Pressa á Arsenal Einhver athyglisverðasti leikur þessarar umferðar verður viðureign PSV og Arsenal en bæði lið eru sannkölluð stórveldi í heimalöndum sínum. Bæði glíma þó einnig við lakan árangur í Meistaradeildinni og vilja fyrir alla muni vinna bug á því sem fyrst. PSV er líklegra til afreka þar sem liðið hefur þriggja stiga forskot í riðlinum og hefur skorað marki meira en Arsenal en sé litið til baka hefur enska liðið aldrei tapað fyrir Hollendingunum áður. Ólíklegt er að Wenger hafi áhuga á að breyta þeirri staðreynd. Rosenborg fær gríska liðið Panathinkaikos í heimsókn en bæði þau lið geta komist upp úr riðlinum lendi Arsenal í ógöngum en slíkt verður að teljast í hæsta máta ólíklegt. Norðmennirnir eru að leika sinn síðasta heimaleik í riðlinum og einn einasti sigur í riðlakeppni Meistaradeildarinnar yrði vel þeginn. Erfitt hjá Celtic Í riðlinum ráða ríkjum AC Milan og Barcelona, bæði með níu stig eftir fjóra leiki, og bæði eru á heimavelli gegn minni spámönnum. Milan mætir Shaktar Donetsk frá Úkraínu og þrátt fyrir að Shaktar hafi þegar komið mörgum á óvart með líflegri spilamennsku er lið Milan of stór biti á útivelli. Þurfi einhverjir hvatningar við fyrir leiki kvöldsins er það lið Celtic sem fær það óþægilega verkefni að hlaupa út á Nou Camp í kjölfar stórsigurs Barcelona á Real Madrid um helgina. Þar spilaði liðið einn sinn besta fótbolta í langan tíma og sjálfstraustið í algjöru hámarki innan þess. Þrátt fyrir að hæfileikamenn leiki með Skotunum má mikið ganga á nái þeir hagstæðum úrslitum hér. Bremen áfram með sigri Það segir meira en mörg orð um belgísku knattspyrnuna að lið Anderlect, sem mætir Valencia á heimavelli, hefur ekki fengið eitt stig enn sem komið er og fengið á sig tólf mörk í fjórum leikjum. Valencia hefur ekki spilað sinn besta bolta heldur undanfarið en þeir eru engu að síður klassa fyrir ofan Belgana og þurfa sigur til að halda veikum vonum sínum á floti. Þýskalandsmeistararnir í Bremen fá Inter í heimsókn en mesta pressan er af báðum liðum enda fimm stig í Valenciu í þriðja sæti. Sigri Bremen má fullyrða að spænska liðið sé úr leik þar sem Inter tekur á móti Anderlecht í lokaumferðinni. Chelsea drottnar Lið Chelsea drottnar yfir riðlinum og eru þegar búnir að tryggja sig áfram. Mourinho er þó ekki kappinn til að slaka á klónni vegna þess og á brattann verður að sækja fyrir Paris SG. Annað sætið er laust til umsóknar og það gæti verið næg gulrót til að Frakkarnir sýni betri leiki en hingað til. Aðstæður í Moskvu eru svipaðar eða verri fyrir Portúgala en á Kárahnjúkum og það hefur mikið að segja þegar í leik CSKA Moskvu og Porto verður komið. Liði Porto tókst ekki að taka þrjú stig gegn CSKA í Portúgal og er án sigurs í riðlinum og fátt sem bendir til að breytinga sé að vænta.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×