Sport

Í hóp þeirra bestu á ný

"Ég er mjög stoltur af strákunum eftir þetta mót enda hafa þeir allir sem einn lagt sig virkilega fram og uppskera eftir því," segir Viggó Sigurðsson, landsliðsþjálfari Íslands í handbolta, eftir sigur liðsins á Slóveníu á Heimsbikarmótinu sem lauk í gær. Ísland lenti þar í fimmta sæti en átta bestu handboltalið heims tóku þátt. Leikurinn gegn Slóvenum var vel leikinn í alla staði en jafnt var með liðum í hálfleik, 18-18, og fátt sem benti þá til að Ísland myndi sigra með fimm marka mun þrjátíu mínútum síðar. Stórleikur þeirra Róberts Gunnarssonarog Rolands Eradze í markinu lagði grunninn að öruggum sigri liðsins en allir leikmenn liðsins skiluðu frábæru dagsverki og var um sannkallaðan liðssigur að ræða. Viggó var afar ánægður með leik liðsins og segir sjálfur að hópurinn hafi komið sér á óvart. "Það var lagt upp með mjög breyttan hóp hingað í upphafi. Margir strákanna þekktust vart og þekktu mig kannski lítið líka. Með það í huga og að við fengum ekki mikinn tíma til æfinga fyrir fram er fimmta sætið fyllilega ásættanlegt og ég get með sanni sagt að við lékum vel í öllum leikjunum nema einum. Miklu skipti að strákarnir öðluðust trú á sjálfa sig þegar á mótið leið og sjálfstraustið eftir sigurinn á heims- og ólympíumeisturum Króatíu á laugardaginn var í hámarki. Það hafði mikið að segja gegn Slóvenum." Róbert Gunnarsson, sem stóð sig frábærlega allt mótið, var verðskuldað valinn í lið mótsins þegar því lauk en Róbert varð enn fremur markakóngur mótsins. Úrslitaleikurinn fór fram milli Svía og Dana og lyktaði með sigri heimamanna, 27-23. Viggó segir að þessi sami hópur og stóð sig framar vonum á þessu móti verði að öllu jöfnu það lið sem hann byggir á fyrir heimsmeistarakeppnina sem fram fer í Túnis á næsta ári. Með þá Ólaf Stefánsson og Sigfús Sigurðsson að auki í liðinu eru bjartir tímar fram undan hjá landsliðinu í handbolta. albert@frettabladid.is



Fleiri fréttir

Sjá meira


×