Þessi mynd er skíturinn 19. nóvember 2004 00:01 "
Það er ekki komið nafn á hana ennþá. Nokkrar tillaganna eru Rokkræningjarnir, Pilots of Purple og Börn ógæfunnar," segir Frosti Runólfsson, sem prýðir forsíðu Fókus, sem fylgir með DV í dag. Frosti er að leggja lokahönd á heimildarmynd um Mínus. Hann skilar öllu litrófi sveitarinnar, upphafinu, upphefðinu, fylleríinu og einlægninni. Samstarfsmaður Frosta er Haraldur Sigurðsson klippari en myndarinnar er vægast sagt beðið með eftirvæntingu. Neitar ekki fylleríinu Á nýafstaðinni Nordisk Panorama kvikmyndahátíð var mynd Frosta til sýningar. "Það var afar gróft klipp. Við fengum krítík áhorfenda, sem var gott. Síðan breyttum við henni og styttum. Nú flæðir myndin betur. Næsta mál á dagskrá er að vinna hljóðið." Myndin um Mínus fylgir hljómsveitinni allt frá byrjun til dagsins í dag. Frosti hefur tekið upp í rúm þrjú ár en auk þess létu meðlimir og vinir þeirra hann fá annað og eldra efni. Fyrr á árinu fylgdi hann Mínus á tónleikaferðalagi um Bretland. Aðspurður um fylleríið og vitleysuna segir hann það allt vissulega vera til staðar. "Ég væri að ljúga ef ég neitaði því. En það er samt allt á góðu nótunum. Það er ekki skrýtið að drykkja fylgi þessu öllu. Hljómsveitinni er t.d. stundum réttur bjórkassi eftir góða tónleika. En ég myndi segja að þetta sé mynd um fimm mismunandi einstaklinga sem hafa sama takmark. Síðan er fylgst með því hvernig þeir ná þessu takmarki." Í viðtalinu í Fókus segir Frosti einnig frá annarri mynd sem hann er að gera um útvarpsmanninn Freysa og hinn vægast sagt litríka hóp sem hann hefur safnað í kringum sig. Frosti vinnur einnig að polaroid-bók um mafíuna sína, sem telur hundrað manns, heimildarmyndinni Dogma, sem hann tók upp með mömmu sinni þegar þau jörðuðu heimilishundinn í Flókadal og mynd um vinnuferli Gabríelu við Bjarkarmyndband. Hann er líka í hljómsveitinni Klink, ásamt bassafantinum Þresti Johnny Jónssyni í Mínus. Allt þetta og miklu meira í Fókus, sem fylgir DV í dag. Bjössi og Bjarni nærast milli tónleika.Frosti RunólfssonMínus rokkar feitt á Reading í sumar.Frosti RunólfssonMeðlimir Mínus virkja náttúruna í sér við hvert tækifæri.Frosti Runólfsson
Menning Mest lesið Pissaði fyrir framan fólk í sjö klukkutíma á dag Menning Rassaumhirða karla í sókn Lífið Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía Lífið Þorgerður Katrín og Sólveig Anna í þrumustuði í Þulu Menning Þreföld útgáfa Drake: „Þessi gaur er stærsti rappari allra tíma“ Tónlist Madonna með heitustu dansmynd ársins Tónlist Sigurjón Sighvatsson heiðraður í Locarno Bíó og sjónvarp Leggja áherslu á liti, gleði og glimmer Lífið Hætt saman en ennþá vinir Lífið Enginn venjulegur sjötugur maður Gagnrýni Fleiri fréttir Rassaumhirða karla í sókn Leggja áherslu á liti, gleði og glimmer Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía Hætt saman en ennþá vinir Varð ástfanginn á sama tíma og móðir hans kvaddi Lára Clausen lýsir eftir stolnum Mustang Blendnar tilfinningar að fara á vinnumarkað á ný Lofuðu svörtu fólki lækningu en blekktu það til dauða „Ég passaði mig sérstaklega á því að tala ekki um Evrópusambandið“ Vigdís Häsler og Sveinn Andri gengu í hnapphelduna Huggulegustu hommar landsins „loksins“ giftir Adam Páls fann ástina í örmum Moniku Stjörnulífið: Rapparar ástfangnir upp fyrir haus Myndaveisla: Líf og fjör úti á Granda Hringdi strax í pabba og sagði honum frá Bond-leiknum Krakkatía vikunnar: Jónas, þjóðardýr og einmanalegt áhugamál Verður yngsta skvettan í þingflokki Sjálfstæðismanna Vesturbæingar kvöddu sögufræga bensínstöð Allt að verða klárt fyrir Sjómannadaginn í Reykjavík Allir og amma þeirra senda kónginum afmæliskveðju Fann ástina á Tinder og endaði í Texas Þegar tónlistin heltók lögmanninn Fréttatía vikunnar: Dua, Danir og Carpenter Anthony Head er látinn Emilíana Torrini selur einbýlishús á 250 milljónir „Aldrei of seint að gera hlutina“ „Þetta skiptir okkur mjög miklu máli“ Einmanalegt áhugamál fjögurra íslenskra stráka Krónprinsessan inn og út af sjúkrahúsi „Við höfum oftar en einu sinni fundið hann í fjöru“ Sjá meira