Sport

Stjarnan lagði Breiðablik

Stjarnan vann í kvöld mikilvægan sigur á Breiðabliki á útivelli í 1.deild karla í körfuknattleik.  Lokatölur urðu 76-79 eftir að heimamenn í Breiðabliki höfðu leitt í hálfleik, 51-46. Eiríkur Sigurðsson var stigahæstur í liði Stjörnunnar með 20 stig en Jónas P. Ólason í liði heimamanna, einnig með 20 stig. Stjarnan komst með sigrinum á topp 1. deildar með 12 stig, tveimur stigum á undan Þór, en Breiðablik er í 7. sæti með 4 stig.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×