Sport

Fyrsta tap Keflvíkinga

Keflvíkingar máttu þola sitt fyrsta tap í Bikarkeppni Evrópu í kvöld er danska liðið Bakken Bears sótti þá heim. Keflavík hafði þó forystu nær allan leikinn og 10 stiga forystu fyrir síðasta leikhluta en Danirnir reyndust sterkir í blálokin og náðu að tryggja sér sigurinn með tveimur vítaskotum 5 sekúndum fyrir leikslok, 80-81.  Gunnar Einarsson var atkvæðamestur í liði heimamanna með 25 stig, Nick Bradford skoraði 23 og Anthony Glover 11 ásamt því að taka 14 fráköst. Verulega fór að draga af Glover undir lok leiksins og klikkuðu þá mörg skot hjá honum. Risinn Chris Christofferson var atkvæðamestur í liði Bakken Bears með 18 stig, 11 fráköst og 4 varin skot. Keflavík er þó enn á toppi A-riðils í Bikarkeppni Evrópu, ásamt Bakken Bears, en bæði lið hafa fimm stig eftir þrjá leiki.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×