Sport

Fyrsti sigur Viggós

Allt er þegar þrennt er. Fyrsti sigur Viggós Sigurðssonar með handboltalandsliðið kom í gær þegar strákarnir hans keyrðu yfir Ungverja. Á ýmsu hafði gengið í fyrstu tveim leikjum Íslands á mótinu en í gær small allt saman. Sigur íslenska liðsins hefði getað verið stærri því strákarnir náðu mest níu marka forystu. Þeir slökuðu á undir lokin, Ungverjar gengu á lagið, skoruðu fjögur síðustu mörkin og björguðu andlitinu. Það er vart hægt að lýsa fyrri hálfleik hjá íslenska liðinu öðruvísi en að segja að hann hafi verið frábær. Bókstaflega allt gekk upp. Liðið spilaði leiftrandi sóknarleik, glimrandi vörn, markvarslan var góð og tæknimistök ákaflega fá. Ungverjar áttu engin svör við stjörnuleik íslenska liðsins og munurinn í leikhléi var sex mörk, 18-12, og átta af þessum mörkum komu úr hraðaupphlaupum. Þessi sex marka munur hélst lengstum síðari hálfleiks og íslenska liðið bætti um betur er þeir náðu níu marka forystu, 31-22. Eftir að hafa náð þeirri stöðu slökuðu strákarnir á klónni, hleyptu Ungverjum inn í leikinn en unnu engu að síður stóran og sannfærandi sigur. Viggó Sigurðsson landsliðsþjálfari var greinilega búinn að fara vel yfir leik liðsins í fyrstu tveim leikjunum því búið var að finna svör við vandamálunum sem plöguðu liðið i fyrstu tveim leikjunum. 3/3 vörnin svínvirkaði lengstum, við skoruðum mörk úr hornunum, menn voru varkárir og gerðu fá byrjendamistök og í fyrri hálfleik varði Hreiðar Guðmundsson eins og berserkur og oftar en ekki úr dauðafærum. Róbert Gunnarsson átti enn einn stórleikinn, skoraði 11 frábær mörk og fiskaði þar að auki fjögur vítaköst. Róbert var í sérklassa á vellinum og er klárlega einn af bestu mönnum mótsins. Guðjón Valur minnti á sig með fínum mörkum og góðum varnarleik. Ánægjulegt var einnig að sjá til Þóris Ólafssonar sem virkaði minna stressaður en áður og skoraði ágæt mörk. Viggó dreifði spilinu vel eins og áður og er nánast búinn að prófa allar mögulegar uppstillingar með þennan hóp í fyrstu þrem leikjunum. Það er augljós stígandi í leik liðsins, leikgleðin skín úr andlitum leikmannanna og augljóst að þeir eru allir sem einn staðráðnir í að sanna sig fyrir nýja þjálfaranum sem var að vonum kátur eftir fyrsta sigurleikinn. "Þetta var verulega fínn leikur hjá okkur og sérstaklega fyrri hálfleikurinn. Seinni var reyndar fínn líka því við leiddum með níu mörkum þegar átta mínútur eru eftir. Það var samt óþarfi að missa þetta niður þetta í lokin," sagði Viggó kátur í bragði enda gekk flest allt upp og Róbert Gunnarsson fór á kostum. "Það var allt annað að sjá til liðsins á eiginlega flestum sviðum og það kom mikið til út af góðri markvörslu hjá Hreiðari. Róbert er náttúrulega búinn að vera ótrúlegur og ég efa að nokkur sé búinn að leika betur á þessu móti. Hann er að spila fullkominn leik og ótrúleg barátta í drengnum," sagði sigurreifur landsliðsþjálfari, Viggó Sigurðsson. henry@frettabladid.is



Fleiri fréttir

Sjá meira


×