Dreymir um sólóplötu 12. nóvember 2004 00:01
Anna ber sig vel þrátt fyrir erfiðleikana sem að henni steðja. Hún er hress í bragði og talar frjálslega um aðstæður sínar enda hefur hún marga fjöruna sopið. "Ég er með lungnaþembu og get ekki sungið," segir söngfuglinn sem gladdi eyru landsmanna í fjörutíu ár. Lungnaþemban uppgötvaðist fyrir jólin í fyrra og varð Önnu vitaskuld áfall. "Ég hef lítið þol og hef varla þorað að syngja síðan þetta kom upp. Ég prófaði reyndar einu sinni og það gekk ekki vel," segir hún. "Ég er skíthrædd yfir þessu og reikna með að fjörutíu árin sem ég fagnaði fyrir þremur árum verði að duga." Árið 2001 hélt Anna upp á fjörutíu ára söngafmæli sitt með sýningu í Ásgarði í Glæsibæ þar sem fjöldi fólks hlýddi á hana klædda kápu úr gyltum pallíettum syngja sín þekktustu lög. "Það er mjög erfitt að kyngja þessu, þetta er í raun hræðilegt. Ég ætlaði að syngja í brúðkaupi vinkonu minnar og ætla að reyna að fara í stúdíó og syngja eitthvað inn fyrir hana." Óvíst er hvernig það fer en þrátt fyrir allt elur Anna með sér þann draum að búa til sólóplötu. "Ég á alltaf eftir að uppfylla drauminn um að gefa út minn eigin disk. Ég hef aldrei gert það, lögin mín hafa bara heyrst á plötum annarra og safnplötum. Ég hef ekki komist lengra og nú er spurning hvort ég geti það." Anna rekur lungnaþembuna vitaskuld til áralangra reykinga, bæði eigin og óbeinna. "Við sem erum í skemmtanabransanum og reykjum, tvíreykjum í raun. Ég reykti sjálf og svo andaðai ég að mér reyknum á skemmtistöðunum," segir Anna og rifjar upp þegar hún hætti fyrir þremur árum: "Það var margbúið að segja við mig að ég yrði að hætta að reykja annars myndi þetta enda með skelfingu. Það varð hins vegar ekkert af því fyrr en fyrir þremur árum og þá var þetta bara mjög auðvelt. Ég hefði aldrei trúað hvað það gekk vel. Ég sagðist ætla að hætta og hætti og mig hefur ekki langað í sígarettu síðan. Það var samt of seint og ég dauðsé eftir að hafa ekki hætt mikið fyrr." Anna stússar ýmislegt á daginn og hugar meðal annars að barnabörnunum sínum sex. "Ég reyni að vera mikið með þeim og svo er reyndar fullt starf að vera sjúklingur og berjast við kerfið." Auk lungnaþembunar þjáist Anna af gigt, brjósklosi og er veil í brisi. "Ég er með fullt af sjúkdómum," segir hún og hlær og siglir áfram í lífiinu á glaðværðinni. Anna söng nokkur lög sem tóku sér bólfestu í hlustum landsmanna. Fyrsta vinsæla lagið hennar var Heimilisfriður sem hún söng með Berta Möller, þá náði Ég bíð við bláan sæ, sem hún söng með Vilhjálmi Vilhjálmssyni, miklum vinsældum líkt og Ef þú giftist. Fráskilin að vestan er hins vegar það lag sem sjálfsagt flestir tengja við Önnu Vilhjálms enda kunni það hvert mannsbarn í eina tíð. Anna á ekki langt að sækja tónlistarhæfileikana, afi hennar í föðurætt var þýskur hljómsveitastjóri og að auki var amma hennar mjög músíkölsk. Hún býr í Reykjavík eins og hún hefur lengst af gert, "enda er ég Reykvíkingur þó Keflvíkingarnir hafi eignað sér mig því ég bjó einu sinni á Suðurnesjunum," segir Anna Vilhjálms.
Menning Mest lesið „Hún byrjaði alla daga á því að fara í kirkjugarðinn í Fossvogi“ Lífið Segir Ríkissjónvarpið bregða fyrir sig fæti Lífið Fundu hvor aðra í prjónaskapnum Tíska og hönnun Unglingavinnan var tískupallurinn í París Lífið Haustbingó Blökastsins í beinni Lífið Neitar að hafa haldið fram hjá Lönu del Rey Lífið Ice Spice fór á klósettið á OTO Lífið Fréttatía vikunnar: Jesus, Haaland og Prettyboitjokkó Lífið Hemmi Gunn hjálpaði Hilmari og Birni Braga að svindla Lífið Martraðarkennd nótt með veirunni skæðu Gagnrýni Fleiri fréttir Haustbingó Blökastsins í beinni Hemmi Gunn hjálpaði Hilmari og Birni Braga að svindla Segir Ríkissjónvarpið bregða fyrir sig fæti Unglingavinnan var tískupallurinn í París „Hún byrjaði alla daga á því að fara í kirkjugarðinn í Fossvogi“ Fréttatía vikunnar: Jesus, Haaland og Prettyboitjokkó Neitar að hafa haldið fram hjá Lönu del Rey Ice Spice fór á klósettið á OTO „Ef það er ekki erfitt þá er það ekki þess virði“ Auglýsing fyrir Bleiku slaufuna frumsýnd á Vísi og Sýn Minnkaði áfengisneysluna og kílóin fylgdu með Nálgunarbann á hendur Berry eftir ásakanir um að taka soninn hálstaki Útkall vegna heimilisofbeldis reyndist vera kynlífslæti Hvað veistu um... Mean Girls? Norðmenn gerðu símaat í Trévirki: „Ég er ingen kúnna um þetta“ Eiður auglýsir tyrkneska hárígræðsluklíník Leiðir skilja hjá Hrafnhildi Helgu og Árna Þorsteinn Víglunds selur Kjartanshöll í Garðabænum Lil Wayne trúlofaður 03-módeli Matthías Már með krabbamein Risastór tappakollur í fallegri íbúð Stöðvaði Skarsgård á leið í kvöldverð með Björk Þessu máttu alls ekki sleppa ef þú vilt lifa lengi Nadine og Þórhildur byrja með nýtt hlaðvarp Meirihluti stjórnar Rúv vill sniðganga Eurovision Hafi sagst ætla að svíkja John Snorra Hætt við tónleika Kanye í Rússlandi Misstu þrettán ára dóttur sína Kemur unnustanum til varnar: „Hann er búinn að standa sig ekkert eðlilega vel“ Karl Th. Birgisson borinn til grafar Sjá meira