Feðgin í fremstu röð 12. nóvember 2004 00:01
Gengi kvennaliðs Hauka í handbolta á þessari leiktíð hefur verið með miklum ágætum og hefur liðið unnið flesta leiki sína hingað til með sannfærandi hætti. Meðan erfitt er að draga ákveðna leikmenn liðsins út fyrir sérstaklega góðan árangur er ljóst að leikstjórnandi liðsins, Ragnhildur Rósa Guðmundsdóttir, hefur átt stóran hlut að máli. Ragnhildur er dóttir þjálfara liðsins, Guðmundar Karlssonar. Guðmundur um dótturina: "Hún er í hlutverki leikstjórnanda og hefur valdið því vel hingað til enda má kannski segja að hún hafi betri tengingu við hausinn á mér en gengur og gerist," segir Guðmundur Karlsson, þjálfari Hauka og faðir Ragnhildar. Hann notar lýsingarorðin sparlega hvort sem er um dóttur sína eða gengi liðsins enda veit hann sem er að mótið er rétt nýhafið og langur vegur eftir enn. "Hún er að skila sínu hlutverki vel eins og allt liðið hingað til. Það hefur gengið vel það sem af er en reyndar kom mér mjög á óvart að Haukum væri spáð efsta sætinu fyrir mótið því það eru fjölmörg önnur góð lið sem hafa að upplagi sama mannskap nú og þau höfðu áður. Við aftur á móti erum enn að mótast sem lið og eigum eftir að verða betri þegar fram líða stundir." Ragnhildur um föðurinn: "Það er alveg tvennt ólíkt að hafa hann sem þjálfara eða hafa hann sem pabba," segir Ragnhildur Rósa Guðmundsdóttir, leikstjórnandi kvennaliðs Hauka. Ragnhildur hefur staðið sig framar vonum og er meðal markahæstu leikmanna. Hún segir einu gilda hver þjálfi liðið en viðurkennir að hún viti yfirleitt upp á hár hvað karl faðir hennar fer fram á í hverjum leik. "Það gerir þetta ekkert erfiðara að hafa hann sem þjálfara en hann kemur fram við mig eins og aðra í liðinu og ég nýt engra forréttinda. Það kemur fyrir að við rífumst en það er eðlilegur hluti af leik sem þessum." Ragnhildur er nýútskrifuð úr framhaldsskóla og segist bera þá von í brjósti að fara út í atvinnumennsku sem fyrst. "Ég er staðráðin í að reyna fyrir mér erlendis ef möguleiki gefst og að því leyti er frábært að spila með Haukum því liðið er mjög gott og á eftir að verða enn betra eftir því sem við lærum betur hver á aðra. Svo spilar liðið vonandi í Evrópukeppninni einhvern daginn og það verður gott tækifæri til að koma sér á framfæri."
Íþróttir Mest lesið Enginn sá tölvupóstinn frá UEFA Sport Það verða tónleikar í hálfleik á úrslitum HM félagsliða Sport Konate gæti farið frítt frá Liverpool Sport Messi slær enn eitt metið Fótbolti HM félagsliða „farsælasta keppni í heimi“ samkvæmt Infantino Sport Rio Ferdinand húðskammar Arsenal stuðningsmenn Enski boltinn Dagskráin í dag: KA fer í Hafnarfjörðinn og golfið heldur áfram Sport Sigurvegarinn Þorsteinn: „Það má ekki á Íslandi“ Sport Þorsteinn Roy fyrstur í mark annað árið í röð Sport Fjarvera Gyökeres gera félagaskiptin hans „flóknari“ Enski boltinn Fleiri fréttir „Við erum klárlega að fara í alvöru slagsmál“ Grealish líkast til á förum en elskar samt City „meira en allt“ Rio Ferdinand húðskammar Arsenal stuðningsmenn Fjarvera Gyökeres gera félagaskiptin hans „flóknari“ Messi slær enn eitt metið Það verða tónleikar í hálfleik á úrslitum HM félagsliða HM félagsliða „farsælasta keppni í heimi“ samkvæmt Infantino Dagskráin í dag: KA fer í Hafnarfjörðinn og golfið heldur áfram Enginn sá tölvupóstinn frá UEFA Konate gæti farið frítt frá Liverpool Elías Már skrifar undir hjá kínversku liði Hákon skoraði tvö í vináttuleik Louis Van Gaal hefur sigrast á krabbameini Landslið Íslands í golfi gerði það gott á EM Leik lokið: Pólland 3 - 2 Danmörk | Bæði lið í leit að fyrstu stigunum Leik lokið: Svíþjóð 4 - 1 Þýskaland | Úrslitaleikur um efsta sætið Þór fer upp í umspilssæti Arnór Sigurðsson hafði betur í Íslendingaslagnum Rústaði úrslitunum á Wimbledon „Síðasti leggurinn var helvíti þungur“ Njarðvík slapp með stig frá Húsavík Sigurvegarinn Þorsteinn: „Það má ekki á Íslandi“ Onana frá næstu vikurnar Stjarna Cavs trúlofuð Grammy verðlaunahafa Doncic fékk að vita af sölunni en ekki LeBron Uppgjörið: Vestri í úrslit í fyrsta skipti Ánægður með Arnar og er klár í haustið Skellur í fyrsta leik hjá guttunum okkar „Þorsteinn er allt of lengi að bregðast við“ Ekki pláss fyrir Rúnar í flugvélinni: „Ég fórnaði mér í þetta“ Sjá meira