Skífuskank og taktkjaftur 12. nóvember 2004 00:01
Á morgun klukkan 20 lýkur Unglist með stórviðburði í Tjarnarbíó. Þá mæta hörðustu hip hop-hausar landsins á svæðið og spreyta sig í hinum fræknu greinum skífuskanki og taktkjafti. Skipuleggjandi keppninnar er Ómar Ómar en hann er einn af forsprökkum samtakanna TFA (tími fyrir aðgerðir). "Við höldum upp á afmæli hip hopsins í leiðinni. Þess vegna ætlum við líka að hafa óvænta viðburði á keppninni, breikdanssýningu hjá 5th Element-hópnum og fleira," segir Ómar. Sex til átta keppendur verða í báðum keppnum. Dagskráin verður þéttari en áður þar sem allt verður tekið upp og sett saman í þátt fyrir PoppTíví. "Í fyrra voru svo margir sem komust ekki að. Til þess að allir geti séð þetta ákváðum við að sýna þetta seinna í sjónvarpinu. Ég hvet alla sem hafa áhuga á tónlist og frumlegum flutningi að mæta." Þetta er í áttunda skipti sem TFA stendur fyrir keppninni en hún var einnig á Unglist í fyrra. Þá sigraði plötusnúðurinn Big Gee í syrpukeppninni, þar sem spila á þriggja til fjögurra mínútna heilsteypta syrpu, Gísli Galdur í skankinu, þar sem plötusnúðurinn skankar sem fjölbreyttust hljóð af einni plötu yfir einn takt, og Bangsi í taktkjaftinum. "Við erum alltaf að reyna að innleiða íslensk orð yfir þetta og heyrum sífellt fleiri nota þau. Þegar ég bar þau undir íslenskusérfræðing hjá Háskólanum samþykkti hann taktkjaft, sagði það málfræðilega rétt. Skank fannst honum ekki virka en við notum það samt." Þeir sem hafa boðað sig til keppni á morgun eru m.a. Gísli Galdur, Nino, Jói, Richard sem var í Quarashi, Hermigervill og Bjartur bítur. TFA stendur ekki aðeins fyrir meistarakeppninni um kvöldið heldur verður einnig klukkan þrjú á morgun kynning á skankskóla, sem fer í gang eftir áramót. Þar verður áhugasömum kennt á græjurnar, menninguna og skankið. Meira um það á heimasíðu TFA, hiphop.is.
Menning Mest lesið „Þetta var morðingi frænda míns, bara alvöru morðingi“ Lífið „Sjálfsvinna er ævistarf“ Lífið „Ég hélt að ég væri hreinlega að deyja“ Lífið „Ég ræð ferðinni“ Lífið „Þetta gekk eins og í lygasögu“ Lífið „Þessi Barbie-dúkka horfir ekki á neitt nema spegilinn“ Lífið Jökull og Telma hvort í sína áttina Lífið Sjálfskipaður Yoda okkar Íslendinga hefur rangt fyrir sér Lífið „Enginn skömm að því að leita sér hjálpar“ Lífið „Fegurð er miklu meira en bara útlit“ Lífið Fleiri fréttir „Sjálfsvinna er ævistarf“ „Þetta var morðingi frænda míns, bara alvöru morðingi“ „Þetta gekk eins og í lygasögu“ „Ég hélt að ég væri hreinlega að deyja“ „Ég ræð ferðinni“ Jökull og Telma hvort í sína áttina „Þessi Barbie-dúkka horfir ekki á neitt nema spegilinn“ „Fegurð er miklu meira en bara útlit“ Stórum hluta kærunnar vísað frá Íslandsvinurinn Gucci Mane frelsissviptur Birnir á lag ársins Myndaveisla: Hundar og kettir velkomnir síðan árið 2017 „Enginn skömm að því að leita sér hjálpar“ Logi Bergmann spyr fjölmiðlamenn spjörunum úr „Ef þú ert að fara í gegnum helvíti haltu bara áfram“ Páskar: Ef þú mættir velja einhvern til að krossfesta Hvað veistu um… Óskarsverðlaunin? Bubbi, kílómetragjaldið og svikin um boltaland fyrir fullorðna Notaði allar líflínurnar í byrjun þáttarins Hlustendaverðlaunin: Kaleo er flytjandi ársins Páskabingó Blökastsins Úr Brúðkaupsþættinum Já yfir í að þjálfa leiðtoga Bubbi með opna hljómsveitaræfingu í Höllinni „Þá spurði ég hann hvort hann vildi gamla eða nýja ísinn“ Mótefni gegn afmennskun og kúgun Var sagt að þetta væri „hluti af því að vera kona“ Hundrað skvísur blómstruðu saman Er ástin blind? Eru konur ástsjúkari en karlar? Kom gríðarlega stórum hlut í gegnum kleinuhring án þess að skemma hann Förgun bóka áþekk því að lóga gæludýrum Sjá meira