Sport

Gunnar og Stefán dæma á HM

Handknattleiksdómararnir Gunnar Viðarsson og Stefán Arnaldsson hafa verið tilnefndir af hálfu leikreglu- og dómaranefndar Alþjóða handknattleikssambandsins til að dæma í heimsmeistarakeppni karla sem fram fer í Túnis 23. janúar-6. febrúar nk. Þetta er enn ein viðurkenningin til Gunnars og Stefáns sem dæmdu á HM fyrir tveimur árum, þar á meðal undanúrslitaleik Króata og Spánverja, fyrir ári síðan dæmdu þeir úrslitaleikinn á heimsmeistaramóti kvenna og nú síðast á Ólympíuleikunum í sumar.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×