Sport

Er að gera eitthvað rétt

"Ég hef fengið að spila meira með liðinu en ég sjálfur átti nokkurn tíma von á á fyrsta tímabili og það hlýtur að þýða að Alfreð telji mig hafa eitthvað fram að færa," segir Arnór Atlason, handboltakappi með þýska liðinu Magdeburg. Þangað hélt hann í sumar eftir að hafa verið valinn handknattleiksmaður ársins hér á landi en þá lék hann með liði KA. Arnór fékk aðeins rétt nógan tíma til að þakka fyrir sig áður en hann hélt til Þýskalands til að spila með liði Magdeburg sem lengi hefur verið eitt toppliðanna í handbolta í Evrópu. Þar spilað hann reglulega með varaliði félagsins ásamt öðrum ungum og efnilegum strákum en auk þess hefur Arnór talsvert fengið að spreyta sig með aðalliðinu Hann segir himinn og haf milli Akureyrar og Magdeburg og það sama megi segja um muninn á atvinnumennsku og áhugamennskunni á Íslandi. "Munurinn er gríðarlegur hvert sem litið er. Hér eru æfingar tvisvar og stundum þrisvar á hverjum degi og þegar ég segi æfingar þá ber ekki að skilja það svo að það sé bara eitthvað sem menn gera milli leikja heldur eru æfingar teknar jafn alvarlega og leikirnir sjálfir. Það er virkilega tekið á því og algengt að harka færist í leik á æfingum. Þeir strákar sem hér spila líta á handboltann númer eitt, tvo, þrjú og fjögur. Fátt annað kemst að." Lið Magdeburg er Íslendingum ekki að öllu ókunnugt. Þjálfari þess er Alfreð Gíslason og auk Arnórs leikur með því Sigfús Sigurðsson og með Magdeburg lék Ólafur Stefánsson þegar hann var upp á sitt besta. Arnór segir það gefa sér byr í seglin að vita til þess að hann sé ekki einn á báti en á endanum sé allur árangur undir honum sjálfum kominn. "Ég viðurkenni að ég átti ekkert frekar von á að spila með liðinu fyrst um sinn en ég hef verið á bekknum í allnokkur skipti og alltaf komið inná. Í leik um daginn spilaði ég allan síðari hálfleikinn og það er það mesta sem ég hef enn fengið. Ég met það sem svo að ég sé að gera eitthvað rétt." Alfreð Gíslason, þjálfari, fær háa einkunn hjá Arnóri sem segir hann ná að draga það besta fram í hverjum og einum hvort sem menn kunna við hann persónulega eður ei. "Hann nær vel til allra með þeim hætti að þeir gefa sig allir í hvern einasta leik. Það er ekki eitthvað sem allir leika eftir enda ríkir gríðarleg ánægja með hans störf fyrir liðið hér um slóðir." Liði Magdeburg hefur gengið vel þetta tímabilið og er það í toppbaráttunni ásamt öðrum góðkunnum félögum á borð við Hamborg, Kiel og Flensborg.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×