Sport

Kærður fyrir ölvun við akstur

Bandaríski sundkappinn Michael Phelps, sem vann til átta verðlauna á Ólympíuleikunum í Aþenu í sumar, er í vondum málum. Franska AFP-fréttastofan greindi frá því í gær að Phelps hefði verið stöðvaður af lögreglu vegna gruns um ölvun við akstur og ætti von á kæru fljótlega vegna atviksins. Phelps, sem er aðeins nítján ára gamall, vantar enn tvö ár til að mega drekka áfengi í heimaríki sínu Maryland en auk þess virti hann ekki stöðvunarskyldu. Phelps hefur hingað til verið talinn vera hin fullkomna fyrirmynd fyrir unglinga en ljóst er að svartur blettur hefur fallið á kappann eftir þetta atvik.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×