Sport

Sprewell að deyja úr sjálfselsku

Það vantar ekki loftið í Latrell Sprewell hjá Minnesota Timberwolves. Spree, eins og kappinn er oftast kallaður, hefur farið mikinn í fjölmiðlum varðandi tilboð Timberwolves-liðsins um að framlengja samninginn sem rennur út í vor. "Af hverju ætti ég að hjálpa liðinu að vinna titil," sagði Spree. "Stjórn liðsins gerir ekkert fyrir mig. Ég þarf að fæða og klæða fjölskyldu mína." Ummæli Sprewell hafa komið mönnum í opna skjöldu þar sem samningurinn hljóða upp á 7 milljón dollara árstekjur næstu þrjú árin. Er Spree búinn að gera sjálfan sig af athlægi vestan hafs vegna sjálfselsku sinnar og það að hann skuli hafa litið á tilboðið sem móðgun þykir hinn mesti brandari. Þar að auki ættu 7 milljón dollarar (490 milljón íslenskar krónur) að duga fjölskyldu hans og vel það.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×