Sport

Safin vann í París

Rússinn Marat Safin vann í dag opna Parísa-meistaramótið í tennis í þriðja sinn á ferlinum og jafnaði þar með met Borisar Becker. Safin, sem vann mótið einnig árin 2000 og 2002, sigraði Tékkann Radek Stepanek í þremur settum, 6-3, 7-6 og 6-3. Þetta var 14. stórmótið sem Safin vinnur á ferlinum, en hann er sem stendur í 6. sæti heimslistans.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×