Lífið

Útgáfutónleikar Brain Police

Nú er komið að því að Brain Police muni leika fyrir landann þriðju breiðskífu sína, Electric Fungus, í heild sinni. Til að geta skilað verkinu eins og það hljómar á skífunni þá hefur sveitin fengið til liðs við sig nokkra hjálparkokka, Hrafn úr Ensími og tvær Bakraddasönggyðjur, og verða tónleikarnir því vel kryddaðir og að öllum líkindum eftirminnilegir. Gaukurinn opnar klukkan 23:00. Skömmu síðar munu Solid I.V. byrja kyndinguna. Brain Police stígur síðan á stokk og leikur Electric Fungus í heild sinni ásamt áðurnefndum hjálparkokkum. Eftir rokk epík ársins mun eðalsveitin Ensími síðan halda partíinu gangandi fram á dökkrauða nótt. Rokkþyrstir ættu því að fá sinn skammt en hinir sem eru bara þyrstir geta glaðst yfir tilboðsprís á bar. 500 kall inn og allir ánægðir.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.