Hillary hlýðir á Þresti 3. nóvember 2004 00:01
Talsvert verður um dýrðir á Grand Hyatt-hótelinu í New York í kvöld þegar Amerísk-skandínavíska stofnunin heldur árlega hátíðarsamkomu sína. Hillary Clinton, þingmaður New York-ríkis, verður meðal gesta ásamt fjölmörgum öðrum áhrifamönnum í bandarísku viðskipta- og stjórnmálalífi sem boðið er til veislunnar. Forseti Íslands verður heiðursgestur en hann hélt utan ásamt eiginkonu sinni fyrr í vikunni. Þjóðhöfðingjar Norðurlandanna fimm eru sérlegir verndarar Amerísk-skandínavísku stofnunarinnar, sem er næstum aldargömul. Forseti Finnlands var heiðursgestur í fyrra og fulltrúar norsku konungsfjölskyldunnar eru væntanlegir að ári. Sérstök áhersla er lögð á Ísland á samkomunni í kvöld og hafa fjölmörg íslensk fyrirtæki staðið að kynningu á sér og sínu í heimsborginni síðustu daga. Er kvöldverðurinn á Grand Hyatt rúsínan í pylsuendanum. Þó að ekki hafi fengist upplýsingar um hvað á borðum verður er víst að pylsur verða þar víðsfjarri enda kostar 500 dali á samkomuna eða 35 þúsund krónur. Allir 400 miðarnir sem í boði voru eru seldir. Samanlagður aðgangseyrir er fjórtán milljónir króna og rennur bróðurpartur fjárhæðarinnar til góðgerðarmála á vegum Amerísk-skandínavísku stofnunarinnar. Auk hefðbundinna ræðuhalda verður dr. Peter Wallenberg, stjórnarformaður Wallenberg-stofnunarinnar, heiðraður sérstaklega. Hann, Clinton, íslensku forsetahjónin og aðrir gestir munu svo njóta söngs Óperukórsins og Karlakórsins Þrastanna úr Hafnarfirði og eru íslenski þjóðsöngurinn og Ísland ögrum skorið á efnisskránni. Forsetahjónin
Innlent Menning Mest lesið Nicole birtir myndir úr Íslandsheimsókninni: „Við elskum ykkur Ísland!!“ Lífið Jóhann Kristófer og Nadía Áróra slá sér upp Lífið „Hver á eftir að vilja konu sem kúkar í poka?“ Lífið Tekjuhæstu listamennirnir árið 2025 Lífið Sögðu já þar sem ástarsagan hófst Lífið „Ég vildi verða þrítug í Pucci“ Lífið Sunneva Einars áfram langtekjuhæsti áhrifavaldurinn Lífið Sannkallað stjörnubrúðkaup Katrínar Tönju og Brooks Lífið Jinny Lu er ljótasti hundur í heimi 2026 Lífið Gamall klassíker fær helvíti góða yfirhalningu Lífið samstarf Fleiri fréttir Jinny Lu er ljótasti hundur í heimi 2026 „Hver á eftir að vilja konu sem kúkar í poka?“ Jóhann Kristófer og Nadía Áróra slá sér upp Nicole birtir myndir úr Íslandsheimsókninni: „Við elskum ykkur Ísland!!“ Sögðu já þar sem ástarsagan hófst Frank Beard er látinn 77 ára að aldri „Ég vildi verða þrítug í Pucci“ Sannkallað stjörnubrúðkaup Katrínar Tönju og Brooks Tekjuhæstu listamennirnir árið 2025 Sunneva Einars áfram langtekjuhæsti áhrifavaldurinn „Ógleymanlegt söngævintýri“ með Nicole Kidman Prjóna á klúbbnum án þess að prjóna yfir sig Hemma Gunn-stytta og heitur pottur í 192 milljóna króna raðhúsi Verjendur Davis segja ekkert að marka skjólstæðing sinn Lofar að minnast Panettiere ávallt af virðingu Stórglæsilegt Sigvaldahús á sölu Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Nicole er fyrir norðan Egill Heiðar og Kittý selja Garðabæjarslotið Helstu samsæriskenningarnar um Evrópusambandið „Ein miðaldra kona að tala um að hún hefði viljað mæta“ Barnalán hjá Brynju Dan Herra og frú Crivello hamingjusöm hjón Svana á tímamótum og selur slotið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Leikkonan Hayden Panettiere er látin Sjá meira