Landeigendur unnu 21. október 2004 00:01
Ríkið beið ósigur í Hæstarétti í dag þegar staðfest var að land innan tiltekinna jarða í Árnessýslu teldust ekki til þjóðlendna, eins og ríkið krafðist. Landeigendur segja langri og erfiðri baráttu þar með lokið. Lögmaður landeigenda segir dóminn fela í sér skilaboð til ríkisins um að gæta hófs í kröfum sínum. Í þessu máli var í raun tekist á um hvar draga eigi mörkin á milli eignarlands og þjóðlendna. Ríkið hafði gert kröfu um að hluti eignarjarða bænda í Biskupstungum skildi gerður að þjóðlendum og þar með tekin af bændum og gerður að almenningseign. Þessari kröfu hafnaði Hæstiréttur. Ennfremur segir Hæstiréttur að bæði Framafréttur og afréttur norðan vatna skuli teljast til þjóðlendna jafnframt vera afréttur Biskupstungnahrepps og er hvoru tveggja í samræmi við úrskurð Óbyggðanefndar. Ólafur Björnsson, hæstaréttarlögmaður segist fagna niðurstöðunni fyrir hönd landeigendanna, enda séu jarðirnarmetnar sem eignarland og ekki fallist á þjóðlendukröfur ríkisins. Ragnar Aðalsteinsson var annar lögmaður landeigenda. Hann segir dóminn fordæmisgefandi og nánast einhlítt að ríkið muni breyta kröfum sínum í þeim málum sem þegar er verið að reka. Hann segir skilaboðin þau að ríkinu beri að sína meiri hófsemi en hingað til hafi verið gert. Björn Sigurðsson í Úthlíð segir að sér líða líklega eins og sigurvegurum sex daga stríðsins, nema í þessu tilviki sé um sex ára stríð að ræða. Björn segir að aleiga landeiganda sé falin í jörðum þeirra og að þeir eyði oft á tíðum lunganum úr ævinni við að eignast jarðirnar. Hann segist hafa rembst við að borga af lánum í 40 ár og sér hefði þótt hart að ríkisvaldið hefði komið eftir allt þetta ströggl og sagt við sig að hann ætti ekki landið. Ólafur Björnsson segir þennan dóm vera mikinn sigur fyrir starf Óbyggðanefndar. nefndinni hafi verið gefið aukið vægi og nú sé búið að leggja línu í málinu og ríkið hljóti nú að draga úr kröfum sínum. Sif Guðjónsdóttir, skrifstofustjóri óbyggðanefndar segir að í dómnum felsist viðurkenning Hæstaréttar á því að forsendur óbyggðanefndar fái í megindráttum staðist.
Fréttir Innlent Mest lesið Slys á Miklubraut: Bíll hafnaði á vegriði Innlent Sendi vitlaust skjal á dómarann og nú þarf að flytja málið upp á nýtt Innlent Grunaður um grófa spillingu í kjölfar birtingar Epstein-skjala Erlent Mátti ekki kalla Samtökin '78 „hagsmunasamtök barnaníðinga“ Innlent „Við sáum það að þetta hreyfði við forsætisráðherra“ Innlent Sorglegt að sonurinn sé aðeins tala á blaði Innlent Aldrei eins lítið í læknum og fuglunum er tekið að fækka Innlent Fær áfram tæpa hálfa milljón en staðgengillinn ekkert Innlent Fór ekki á milli mála að Jón Þór ætlaði að drepa hana Innlent Enginn rökstuddur grunur um að önnur konan hafi brotið af sér Innlent Fleiri fréttir Sendi vitlaust skjal á dómarann og nú þarf að flytja málið upp á nýtt Slys á Miklubraut: Bíll hafnaði á vegriði „Gamlar“ kempur kenndu bridge á Laugarvatni Mátti ekki kalla Samtökin '78 „hagsmunasamtök barnaníðinga“ Aldrei eins lítið í læknum og fuglunum er tekið að fækka Sorglegt að sonurinn sé aðeins tala á blaði Skjálftahrina í Mýrdalsjökli „Við sáum það að þetta hreyfði við forsætisráðherra“ Fór ekki á milli mála að Jón Þór ætlaði að drepa hana Þurfa aftur að rannsaka mál tveggja barna á Múlaborg Sorglegt að vera einungis tala á blaði Konur í Framsókn sjá að sér Stjórnin treystir Margréti Enginn rökstuddur grunur um að önnur konan hafi brotið af sér Skila af sér breyttri Reykjavíkurleið í febrúar Framsóknarmenn takast hart á að tjaldabaki Mikil mótstaða íbúa á hitafundi um flutning kaffistofunnar Saka stjórnina um „óskhyggju, afneitun og ímyndaðan veruleika“ Grautfúl Kristrún og Vetrarhátíð hefst í kvöld Tíu tilkynnt um veikindi eftir að hafa borðað mat frá Vitatorgi Afturkalla endurvigtunarleyfi Brims vegna „stórfellds gáleysis“ Fimm prósent atvinnuleysi í lok árs 2025 Samningaviðræðum slitið og áframhaldandi samstarf Í-listans úr sögunni Margir sem þurfa að horfa eða hlusta til að sofna Úr fjölmiðlum í dýraverndarmál Fær áfram tæpa hálfa milljón en staðgengillinn ekkert Stíga fram á Facebook, fordæma rektor og segja nóg komið Aðeins eitt riðutilfelli allt síðasta ár Urðu vitni að því þegar maður var hálshöggvinn Páll Edwald vill sæti á lista Miðflokksins Sjá meira