Kennarar í kröfugöngu 20. október 2004 00:01
Grunnskólakennarar og stuðningsmenn þeirra fjölmenntu í kröfugöngu í miðborg Reykjavíkur í dag, nú þegar verkfall hefur staðið yfir í heilan mánuð. Á þessum tímamótum minntu kennarar rækilega á málstað sinn. Þeir söfnuðust saman klukkan þrjú á Hlemmi og gengu síðan með kröfuspjöld á lofti niður Laugaveginn, um Bankastræti og Austurstræti en leiðin lá að Ingólfstorgi þar sem haldinn var útifundur. Talsmenn þeirra sögðu að þrjú þúsund manns hefðu tekið þátt í þessum aðgerðum í dag en þær fóru friðsamlega fram. Verkfallið snertir stóran hluta þjóðlífsins, ekki aðeins þá 4500 kennara sem krefjast hærri launa, heldur einnig 30 þúsund heimili 45 þúsund grunnskólabarna. Allt situr enn fast í viðræðum fulltrúa kennara og sveitarfélaga og hefur í raun ekkert miðað að undanförnu. Samningamenn deiluaðila hafa fundað í Karphúsinu í dag en nú rétt fyrir fréttir fengust þær upplýsingar þaðan að þar væri ekkert að gerast. Ekkert nýtt hefði komið fram sem orð væri á gerandi. Að útifundinum loknum hélt kröfugangan áfram. Gengið var framhjá Alþingishúsinu og enn minnt á þá kröfu að ríkisvaldið yrði að koma að málinu ef lausn ætti að finnast. Þaðan var farið að Ráðhúsinu og stjórnendur stærsta sveitarfélags landsins minntir á kröfurnar.
Fréttir Innlent Mest lesið Slysið á Miklubraut „mjög alvarlegt“ og óskað eftir vitnum Innlent Slys á Miklubraut: Einn fluttur á sjúkrahús og einn bíll tjónaður Innlent Biggi lögga lamaður eftir að ofbeldi var borið upp á hann Innlent Vægur dómur fyrir að áreita átta stúlkur: „Mér er slétt sama um aldursmun“ Innlent Níu Íslendingar um borð í flugvél sem hafnaði úti á grasi Innlent Mynd af Dorrit með Mette-Marit og Maxwell vekur athygli í Noregi Erlent Sendi rangt skjal á dómarann og nú þarf að flytja málið upp á nýtt Innlent Hvetur til allsherjarverkfalls ef Trump reynir að stela þingkosningunum Erlent Grunaður um grófa spillingu í kjölfar birtingar Epstein-skjala Erlent „Flókið að koma saman framboði með fjóra flokka“ Innlent Fleiri fréttir Opna dyr sínar vegna slyssins á Miklubraut Bakkakot rannsakað og mönnunum boðin áfallaaðstoð „Eftirlit sveitarfélaga með fósturbörnum er brotið“ Níu Íslendingar um borð í flugvél sem hafnaði úti á grasi Rannsókn áfram í fullum gangi þrátt fyrir úrskurðina Fullyrðir að eftirlit með fósturbörnum sé brotið Ekki sé lögboðið eftirlit með fimmtungi fósturbarna Biggi lögga lamaður eftir að ofbeldi var borið upp á hann Vægur dómur fyrir að áreita átta stúlkur: „Mér er slétt sama um aldursmun“ Ragnheiður nýr forseti LUF Snjór á Hellisheiðinni Risa framkvæmd við Heilbrigðisstofnun Suðurlands á Selfossi Slysið á Miklubraut „mjög alvarlegt“ og óskað eftir vitnum „Flókið að koma saman framboði með fjóra flokka“ Ölvun og þjófnaðir Sendi rangt skjal á dómarann og nú þarf að flytja málið upp á nýtt Slys á Miklubraut: Einn fluttur á sjúkrahús og einn bíll tjónaður „Gamlar“ kempur kenndu bridge á Laugarvatni Mátti ekki kalla Samtökin '78 „hagsmunasamtök barnaníðinga“ Aldrei eins lítið í læknum og fuglunum er tekið að fækka Sorglegt að sonurinn sé aðeins tala á blaði Skjálftahrina í Mýrdalsjökli „Við sáum það að þetta hreyfði við forsætisráðherra“ Fór ekki á milli mála að Jón Þór ætlaði að drepa hana Þurfa aftur að rannsaka mál tveggja barna á Múlaborg Sorglegt að vera einungis tala á blaði Konur í Framsókn sjá að sér Stjórnin treystir Margréti Enginn rökstuddur grunur um að önnur konan hafi brotið af sér Skila af sér breyttri Reykjavíkurleið í febrúar Sjá meira