Innlent

Rækjuveiðar bannaðar í Djúpinu

Rækjuveiðar verða ekki leyfðar í Ísafjarðardjúpi í vetur ef farið verður að tillögum Hafrannsóknastofnunar. Leggur stofnunin ennfremur til að rækjuveiðar verði ekki leyfðar í Arnarfirði að svo stöddu. Nýlokið er haustkönnun á rækjumiðum á Vestfjörðum og eru niðurstöður Hafrannsóknastofnunar þær að mikil fiskgengd í Ísafjarðardjúpi hafi að öllum líkindum leitt til hruns rækjustofnsins þar. Í Arnarfirði var stofnvísitala langt undir meðaltali og jafnvel takmarkaðar rækjuveiðar þar kunni að auka verulega líkur á hruni stofnsins.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×