Innlent

Stormur á norðaustanverðu landinu

Snjór og hálka er á fjallvegum um norðan- og austanvert landið og víða er hálka niður á láglendi og í þéttbýli, eins og á Akureyri og Húsavík. Stormur er á norðaustanverðu landinu og lentu nokkrir ökumenn í vandræðum í Oddsskarði í gærkvöldi. Tvennt slasaðist til að mynda þegar bíll þeirra rann út af veginum í Bólstaðahlíðarbrekku. Lögreglumenn víða um land varar fólk við hálku og þá sérstaklega ef ökumenn eru enn á sumardekkjum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×