Fallegasta stundin 3. október 2004 00:01 "
Ég lofaði sjálfum mér að koma hingað aftur og vinna eftir að ég tapaði bikarúrslitaleiknum fyrir tíu árum sem leikmaður Grindavíkur. Nú hefur það ræst og þetta er fallegasta stundin sem ég hef átt á Íslandi," sagði Milan Stefán Jankovic, þjálfari Keflvíkinga, í samtali við Fréttablaðið eftir að lærisveinar hans höfðu lagt KA að velli, 3-0, og tryggt félaginu sigur í VISA-bikar karla í knattspyrnu á Laugardalsvelli í gær. Keflvíkingar fengu óskabyrjun þegar þeir komust yfir strax á 11. mínútu en þá átti afmælisbarnið Scott Ramsey, sem var 29 ára í gær, frábæran sprett sem endaði með því að Daninn Ronni Hartvig braut á Ramsey innan vítateigs. Kristinn Jakobsson, dómari leiksins, dæmdi réttilega vítaspyrnu og úr henni skoraði Þórarinn Kristjánsson af öryggi. Stundarfjórðungi síðar bætti Þórarinn öðru marki við eftir fallegan undirbúning þeirra Zorans Daníels Ljubicic og Hólmars Rúnarssonar og við markið var sem allur vindur væri úr KA-mönnum. Þeir gerðu heiðarlegar tilraunir til að sækja í síðari hálfleik en þær tilraunir voru flestar vonlausar. KA-menn fengu þó aragrúa af hornspyrnum í síðari hálfleik en tókst ekki, þrátt fyrir góðan vilja og baráttu að nýta eina einustu þeirra. Undir lokin skoraði Hörður Sveinsson síðan þriðja mark Keflvíkinga eftir að KA-menn höfðu flutt nánast alla sína menn fram og lítið var um varnir. Áður hafði Sandor Matus, markvörður KA-manna, varið frá Scott Ramsey og Þórarni Kristjánssyni eftir að þeir höfðu komist einir í gengum vörn KA-liðsins. Keflvíkingar voru vel að sigrinum komnir. Þeir voru taugaóstyrkir í byrjun leiks en eftir að skjálftinn var farinn úr þeim réðu þeir lögum og lofum á vellinum. Scott Ramsey var í fínu formi á vinstri kantinum og í framlínu liðsins var Þórarinn Kristjánsson mjög ógnandi. Hann kórónaði mjög gott tímabil með því að skora tvö mörk en hefði að ósekju mátt fullkomna þrennuna með því að nýta eitthvert af þeim dauðafærum sem hann fékk. Jónas Guðni Sævarsson var eins og kóngur í ríki sínu á miðjunni og þessi 21 árs gamli strákur spilaði eins og hann hefði lítið gert annað um ævina en að spila úrslitaleiki. Annars var þessi sigur Keflvíkinga sigur liðsheildarinnar og Milans Stefáns Jankovic, þjálfara liðsins. "Þessir strákar voru frábærir í leiknum og ég gæti ekki verið hamingjusamari," sagði Jankovic. KA-menn reyndu hvað þeir gátu en höfðu ekki erindi sem erfiði. Þetta er annað áfallið sem liðið verður fyrir á tveimur vikum en eins og Hreinn Hringsson, framherji KA-manna orðaði það við blaðamann Fréttablaðsins eftir leikinn; "Við áttum ekki meira skilið." KA-Keflavík0-3 0-1 Þórarinn Kristjánsson, víti (11.), 0-2 Þórarinn Kristjánsson (25.), 0-3 Hörður Sveinsson (90.).
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Elísa meðal tíu efstu á EM í utanvegahlaupum Sport Gamlir draugar sóttu að Arnari í Japan Fótbolti Stórsigur hjá Belgum undir stjórn Elísabetar Fótbolti Fór á spítala og HM gæti verið í hættu Fótbolti Írarnir hans Heimis skemmdu kveðjupartý Kanada Fótbolti Aron Einar heim í Þorpið? Íslenski boltinn Mistök Wembanyama leiddu til annars sigurs Knicks Sport „Við nutum þess í botn að vera þarna“ Fótbolti Borinn grátandi af velli viku fyrir HM Fótbolti HM-minning: „Leyfið þeim að kyssast“ Fótbolti Fleiri fréttir Landsliðsmenn Íran komnir með ferðaleyfi til Bandaríkjanna Byrjaði mótið með enga styrktaraðila og áhyggjur af hótelkostnaði Borinn grátandi af velli viku fyrir HM Liðsstjóri Ferrari á spítala Írarnir hans Heimis skemmdu kveðjupartý Kanada Mistök Wembanyama leiddu til annars sigurs Knicks HM-minning: „Leyfið þeim að kyssast“ Gamlir draugar sóttu að Arnari í Japan „Við nutum þess í botn að vera þarna“ Elísa meðal tíu efstu á EM í utanvegahlaupum Dagskráin í dag: Tímatökur í Mónakó og æfingalandsleikir Fór á spítala og HM gæti verið í hættu Hefur ekki áhyggjur af slæmum velli Myndasyrpa: Sara Björk snýr heim Verður hjá Celtic eitt ár í viðbót Markaveisla í Lengjudeildinni Heimsmeistararnir lögðu Evrópumeistarana Stórsigur hjá Belgum undir stjórn Elísabetar Þarf að draga sig úr keppni í undanúrslitum Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu „Markmiðinu er náð“ Uppgjörið: Úkraína - Ísland 0-1 | Stórt skref í átt að HM Aron Einar heim í Þorpið? Örn tekur við karlaliði Selfoss Náðu miðum á HM án þess að borga fyrir þá Sara Björk tekur einnig að sér afreksþjálfun hjá Haukum Lið Íslands gegn Úkraínu: Thelma, Sandra og Emilía fremstar Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Furðu lostinn yfir brottrekstri Freys Höggin dynja á Þórsurum: Norðmaðurinn farinn heim Sjá meira