Óðu ána upp að mitti 16. september 2004 00:01
Fjórir franskir ferðamenn sem leit var hafin að skiluðu sér til byggða heilir á húfi rétt eftir klukkan tólf í hádeginu í gær. Frakkarnir höfðu bókað sig á Hótel Rangá í fyrradag og skilið farangur sinn eftir á hótelherbergjunum. Lögðu þeir síðan af stað í bílferð en ekki var vitað hvert ferð þeirra var heitið. Þegar fólkið hafði ekki skilað sér inn á hótelið klukkan átta í gærmorgun var haft samband við lögregluna á Hvolsvelli. Við athugun lögreglu kom í ljós að Frakkarnir höfðu sýnt því áhuga við ferðaskrifstofu að skoða Heklu. Björgunarsveitir voru því kallaðar út um klukkan ellefu og hófu leit á svæðinu í kringum Heklu. Síðar kom í ljós að Frakkarnir höfðu farið inn í Landmannalaugar, þaðan inn að Eldgjá og að Ófærufossi. Í bakaleiðinni festu þeir bíl sinn í ánni Ófæru og þurftu að vaða upp í mitti til að komast úr ánni. Þaðan gengu þeir um átta kílómetra að skála í Hólaskjóli þar sem þeir eyddu nóttinni. Í gærmorgun hittu Frakkarnir hollenskt par við skálanum sem keyrði þá til byggða. Á meðfylgjandi mynd má sjá skálann í Landmannalaugum en þangað fóru ferðamennirnir áður en þeir fóru inn að Eldgjá og að Ófærufossi.
Fréttir Innlent Mest lesið Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Innlent Ítreka yfirráð yfir Falklandseyjum eftir hótun Bandaríkjamanna Erlent Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Innlent Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit Innlent Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Innlent Netanjahú greindist með krabbamein Erlent Gerðu árás á mörgum stöðum á sama tíma Erlent Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Innlent Hlýtt í dag en kuldi í kortunum Veður Gasabúar kjósa í fyrsta sinn í tuttugu ár Erlent Fleiri fréttir Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Sjá meira