Faðernið leiðrétt 15. september 2004 00:01 "
Ef áratugagamlar leiðréttingar á faðerni berast hér inn, þá er það nánast einsdæmi," sagði Sóley Ragnarsdóttir lögfræðingur hjá Hagstofu Íslands, spurð um tíðni þess, að leiðréttingar á faðerni bærust til þjóðskrár mörgum árum, ef til vill áratugum, eftir að dómur hefði gengið í barnsfaðernismáli. Tilefni fyrirspurnar Fréttblaðsins er allsérstætt mál, er varðar faðerni barns, sem ekki var leiðrétt í þjóðskrá fyrr en um það bil fimm áratugum eftir að dómur hafði gengið í því. Samkvæmt heimildum blaðsins hófst málið árið 1946 - 1947, þegar kona ein sem þá var búsett á landsbyggðinni, kenndi tilteknum manni barn sitt. Maðurinn gekkst við því í fyrstu, en fékk síðan bakþanka um að hann ætti það. Hann greiddi aldrei meðlag og neitaði að hann væri faðir barnsins. Konan fór þá í barnsfaðernismál við manninn, sem bjó í öðrum landshluta þegar hér var komið sögu. Málið var bæjarþingsmál, sem rekið var fyrir sakadómi Reykjavíkur sem þá var til húsa á Fríkirkjuvegi 11. Niðurstaðan varð sú, að málið var afgreitt á aðalblóðflokkum eins og þá tíðkaðist og blóðsýni úr manninum útilokaði að hann gæti verið faðir barnsins. Málið var því fellt niður, eins og jafnframt tíðkaðist þá þegar blóðflokkur afsannaði faðerni. Í prestsbókinni í búsetuhéraði konunnar stóð þó áfram skráð staðhæfing hennar um að maðurinn tiltekni væri faðir barnsins. Hann var skráður faðir þess í þjóðskrá þegar hún var stofnsett árið 1952, nokkrum áður eftir fæðingu þess. Þar kom nú nýverið, að maðurinn vildi leiðrétta þessa rangfeðrun í þjóðskrá. Hann leitaði til lögmanns, sem tók til við að afla nauðsynlegra gagna. Þar sem málið var komið svo til ára sinna fundust þau loks á þjóðskjalasafninu. Þjóðskrá Hagstofunnar brá hart við og gaf út nýtt fæðingarvottorð fyrir barnið, sem nú er ófeðrað.
Fréttir Innlent Mest lesið Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Innlent Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Innlent Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Erlent „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Innlent Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Innlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent Fleiri fréttir „Hverjir tala við mömmu mína?“ Bókun 35 útskýrð á mannamáli Brotist inn í fyrirtæki í miðborginni Slökkvilið í Hafnarfjörð „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Tvær þyrlur út á ystu nöf lögsögunnar Sökk í þriðja sinn í höfninni „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Sjá meira