Sjálfstæðismenn vilja framkvæmdir 14. september 2004 00:01
Sjálfstæðismenn ætla að leggja til á fundi samgöngunefndar borgarinnar í dag að hætt verði við að fresta mislægum gatnamótum Miklubrautar og Kringlumýrarbrautar. Þau verði skilgreind sem forgangsframkvæmd og markvisst haldið áfram því ferli sem þegar er hafið með mati á umhverfisáhrifum. Kjartan Magnússon borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins segir að þótt haldið verði áfram með umhverfismatið af fullum krafti taki það samt um eitt og hálft ár. Borgarfulltrúar R-listans beri nú þegar alla ábyrgð á því að gerð mislægra gatnamóta við Miklubraut-Kringlumýrarbraut hafi tafist í tíu ár. Í byrjun september var boðað til íbúafundar til að kynna hönnunartillögur um mislæg gatnamót á umræddum gatnamótum. Fundinum var hins vegar aflýst á síðustu stundu. Í kjölfarið sagði Árni Þór Sigurðsson forseti borgarstjórnar að framkvæmdin væri ekki forgangsverkefni og ekki yrði ráðist í gerð mislægra gatnamóta við Miklubraut-Kringlumýrarbraut á næstu árum. Gerð umferðarmannvirkisins kostar um tvo komma sjö milljarða en áttatíu þúsund fara daglega þessa leið. Kjartan segir að það sé gríðarlegt hagsmunamál fyrir borgarbúa að framkvæmdin tefjist ekki meira en orðið er. Hann segir að hún muni greiða mjög fyrir umferð og stórlega draga úr slysahættu, loftmengun og hávaðamengun. „Ég hvet borgarbúa að beina því til R-listans að hann hverfi frá villu síns vegar og skipti um skoðun og fari í þessa framkvæmd sem fyrst," segir Kjartan.
Fréttir Innlent Mest lesið Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Innlent Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Innlent Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Erlent „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Innlent Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Innlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent Fleiri fréttir „Hverjir tala við mömmu mína?“ Bókun 35 útskýrð á mannamáli Brotist inn í fyrirtæki í miðborginni Slökkvilið í Hafnarfjörð „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Tvær þyrlur út á ystu nöf lögsögunnar Sökk í þriðja sinn í höfninni „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Sjá meira