Stjórnin vill efla dreifikerfið 13. september 2004 00:01
Vilji er fyrir þvi innan beggja stjórnarflokka til að nýta hluta af því fé sem fæst með sölu Símans til að standa að útboði til að efla dreifikerfið. Öll símafyrirtæki gætu þá boðið í verkið og þannig yrði tryggt að allir landsmenn hefðu jafnan aðgang að gagnaflutningum. Ákvörðun liggur ekki fyrir en verkefnið myndi að líkindum kosta marga milljarða. Eins og við sögðum frá í fréttum í gær heimila Evróputilskipanir ekki að símafyrirtækjum séu sett skilyrði varðandi útbreiðslu dreifikerfis. Rannveig Rist stjórnarformaður Landsímans sagði í viðtali við Stöð 2 að á Landssímanum hvíldu engar slíkar kvaðir, stjórnendur fyrirækisins væru ekki skyldugir til að leggja kerfið á þá staði þar sem það svaraði ekki kostnaði nema ríkið sem á nær allan hlut í Landsímanum beiti áhrifum sínum sem hluthafi. Slíkar kvaðir gætu hinsvegar ekki fylgt með í kaupunum þegar Landssíminn verður seldur. Eins hefur komið fram settu framsóknarmenn það skilyrði fyrir einkavæðingunni að hún yrði ekki til að skerða dreifikerfið. Davíð Oddsson forsætisráðherra hefur sagt að hægt væri að nýta það fé sem kæmi inn við söluna til að efla kerfið. Kostnaðurinn hleypur þó á mörgum milljörðum samkvæmt upplýsingum frá stjórnarformanni Símans. Og það kann að koma mönnum spánskt fyrir sjónir að ríkið ætli að selja Landsímann og dreifikerfið og verja síðan almannafé til að efla það, þegar það er komið í hendur einkaaðila. Samkvæmt heimildum fréttastofu ræða menn úr báðum stjórnarflokkum nú um það að efnt verði til útboðs eftir söluna sem öll símafyrirtæki geti tekið þátt í. Það þeirra sem hreppir verkið fær síðan greitt úr ríkissjóði fyrir að leggja dreifikerfi til allra landsmanna, líka á þá staði þar sem það annars myndi ekki svara kostnaði.
Fréttir Innlent Mest lesið Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Innlent Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Innlent Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Erlent „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Innlent Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Innlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent Fleiri fréttir „Hverjir tala við mömmu mína?“ Bókun 35 útskýrð á mannamáli Brotist inn í fyrirtæki í miðborginni Slökkvilið í Hafnarfjörð „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Tvær þyrlur út á ystu nöf lögsögunnar Sökk í þriðja sinn í höfninni „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Sjá meira