Tekist á um nýbúaskýrslu 12. september 2004 00:01
Alþjóðahúsið gagnrýnir nýútkomna skýrslu um þjónustu Hafnarfjarðarbæjar við nýbúa. Í skýrslunni segir meðal annars að skoða þurfi vandlega samstarf við Alþjóðahúsið vegna þess hversu miklir fjármunir eru settir í þennan eina þátt. Hafnarfjarðarbær ásamt fleiri sveitarfélögum á höfuðborgarsvæðinu gerðu samning um samstarf við Alþjóðahúsið. Árskostnaður bæjarins er tæplega fimm og hálf milljón og fær bæjarfélagið þá 25 prósenta afslátt af allri þjónustu Alþjóðahússins. Það sem af er árinu hefur bærinn keypt þjónustu fyrir um fjögur hundruð þúsund krónur. Þá segir að nýting nýbúa á þjónustunni sé afar takmörkuð. "Við höfum sagt könnunina engan veginn vera marktæka því hún er ekki vísindalega unnin," segir Sigurður Þór Salvarsson, upplýsingafulltrúi Alþjóðahússins, um nýútkomna skýrslu um þjónustu Hafnarfjarðarbæjar við nýbúa. Sigurður segir úrtakið í skýrslunni handahófskennt. Talað hafi verið við þrjá Pólverja og fimmtán Filippseyinga þannig að af öllum nýbúum í Hafnarfirði sé það ekki einu sinni marktækt úrtak. Hann segir því út í hött að draga einhverjar ályktanir á samtölum við svo fáa. Þá gagnrýnir hann einnig að við gerð skýrslunnar hafi ekki verið aflað upplýsinga hjá Alþjóðahúsinu um hversu margir Hafnfirðingar hafi nýtt sér þjónustu þeirra beint. Tugir hafi nýtt sér lögfræðiþjónustu Alþjóðahússins og yfir hundrað manns nýttu sér túlka og þýðingarþjónustu. Að auki hafi verið fræðsla í vinnuskóla Hafnarfjarðar þar sem fjögur hundruð unglingar fengu fjölmenningarlega fræðslu. "Það stendur að einhverju leiti upp á bæjaryfirvöld að kynna bæjarbúum þá þjónustu sem þeir kaupa af Alþjóðahúsinu," segir Sigurður. "Við höfum ásamt nokkrum öðrum sveitarfélögum á höfuðborgarsvæðinu verið í samstarfi við Alþjóðahúsið og það hefur gengið ágætlega," segir Lúðvík Geirsson, bæjarstjóri í Hafnarfirði, um gagnrýni Alþjóðahússins á skýrsluna. Lúðvík segir skýrsluna hafa verið gerða til að fá ákveðna yfirsýn yfir stöðu mála og finnst honum þeir hjá Alþjóðahúsinu vera óþarflega viðkæmir fyrir því sem þar kemur fram. Engar ákvarðanir hafi verið teknar um að gera breytingar á því fyrirkomulagi sem er í dag eða um þann samning sem bærinn hefur gert við Alþjóðahúsið. Hann segir aðeins hafa verið vilja hjá bænum að skoða mál nýbúa sem eru orðnir um eitt þúsund í bænum af 50 til 60 þjóðernum. Nýbúar eru því orðnir um fimm prósent af íbúatölu bæjarins. Um að skýrslan sé óvísindalega unnin segir Lúðvík að ekki hafi verið beðið um að gera vísindalega skýrslu um málin heldur var einungis verið að gera ákveðna könnun.
Fréttir Innlent Mest lesið Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Innlent Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Innlent Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Erlent „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Innlent Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Innlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent Fleiri fréttir „Hverjir tala við mömmu mína?“ Bókun 35 útskýrð á mannamáli Brotist inn í fyrirtæki í miðborginni Slökkvilið í Hafnarfjörð „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Tvær þyrlur út á ystu nöf lögsögunnar Sökk í þriðja sinn í höfninni „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Sjá meira