Rækjuveiðimenn hlunnfarnir 12. september 2004 00:01 "
Þarna er hreint og beint um eignaupptöku af hálfu ríkisins að ræða og útgerðarmenn hlunnfarnir sem mest er hægt," segir Ásgeir Blöndal, útgerðarmaður á Blönduósi. Hann er einn þeirra sjómanna sem gerði út á innfjarðarrækju á Húnaflóa þegar þær veiðar gengu sem best en nú er stofninn hruninn. Þar fyrir utan hefur orðið mikið verðfall á rækju á mörkuðum undanfarin ár. "Rækjuveiðarnar hrundu hérna á Húnaflóanum og samkvæmt lögum um stjórnun fiskveiða segir að sé um hrun að ræða í því sem kallast sérveiðar þá beri að bæta slíkt. Það gerir sjávarútvegsráðherra ekki heldur þvert á móti þá sker hann reglulega niður." Ásgeir segir að áður en innfjarðarrækjustofninn hafi hrunið hafi hann verið að veiða sem nemur 185 þorskígildistonn að meðaltali ár hvert en nú sé hvert skip með tæp 40 þorskígildistonn. "Menn innan ráðuneytisins hafa gefið skýrt til kynna að þetta eigi að skerða enn frekar og kippa þannig fótunum undan þeim örfáu útgerðarmönnum sem enn berjast við að ná endum saman." Aðrir útgerðarmenn í nágrannabyggðum taka í sama streng. Eðvarð Daníelsson, sem gerir út frá Hvammstanga, finnst miður hvaða móttökur þeir fái í sjávarútvegsráðuneytinu þegar farið er fram á frekari bætur. "Það hefur verið sagt ítrekað við okkur að fara í mál ef við séum ekki sáttir. Það eina sem við viljum er að fá aftur þann kvóta sem var tekinn af okkur í upphafi. Annars geta þessar útgerðir sem enn tóra hætt baslinu. Gullið er horfið og ekkert eftir nema setja árar í bát enda er ég ekkert bjartsýnn á að ráðuneytismenn fari nú að sýna lit í málinu."
Fréttir Innlent Mest lesið Fjögurra tonna eldflaugabútur skall á tunglið á ógnarhraða Erlent Skipverjar gangi örna sinna í vaska og lögmaðurinn fullur Innlent Samræði við þrettán ára stjúpsystur ekki nauðgun að mati héraðsdóms Innlent Verja fúlgum fjár í að hafa upp á þeim sem gagnrýna ICE á netinu Erlent Lögreglan mun fylgja skipverjunum úr landi Innlent Gleymdi að hann hefði staðið fyrir innleiðingu Evrópulaga Innlent Reyndust báðir vopnaðir, annar hamri og hinn öxi Innlent Ítrekað hjólað á móti umferð Innlent Segir lögreglu skrumskæla gamansöm ummæli Innlent Algjörlega varnarlausir gegn skotflaugum Rússa Erlent Fleiri fréttir Gleymdi að hann hefði staðið fyrir innleiðingu Evrópulaga Alvarlegt að ógna fólki með því sem það heldur að sé vopn Lögreglan mun fylgja skipverjunum úr landi Samræði við þrettán ára stjúpsystur ekki nauðgun að mati héraðsdóms Reyndust báðir vopnaðir, annar hamri og hinn öxi Segir lögreglu skrumskæla gamansöm ummæli Landsmönnum fjölgaði um 1.450 á öðrum ársfjórðungi Ítrekað hjólað á móti umferð Marktækur munur á fylgi Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks Skipverjar gangi örna sinna í vaska og lögmaðurinn fullur Meirihluti telur vexti lækka en undanþágu í sjávarútvegi ólíklega Ný ESB-könnun, skipverjar Bandero og óþarfa hætta á Hverfisgötu Skipverjarnir mega allir fara frá borði Næturborun í sjó lokið og verktakar þakka íbúum þolinmæðina Minnst einn skipverji Bandero má fara frá borði „Við látum ekki fæla okkur aftur inn í skápinn“ „Við erum svolítið strand“ Útsýnispallurinn talinn öruggur þrátt fyrir sprungur Slökktu eld í jepplingi á „örskotsstund“ Ruglingslegar og misvísandi frásagnir um fjóra til fimmtán árásarmenn Engir minkar hafi ratað í gildrur síðustu sólarhringa „Ekki skemmtilegt fyrir starfsfólk“ Gríðarlegur fjöldi fyrir norðan og mikil óþolinmæði á heimleið Kólumbíumenn í haldi og skipverjar Bandero bíða örlaga sinna Fjölskyldan í haldi vegna gruns um innflutning fíkniefna Heimir Hannesson er látinn Breytir ekki veðurspám til að þóknast hátíðahöldurum Skipar nýja bótanefnd Vill breyta lögum um .is Enn eitt innbrotið í miðbænum Sjá meira