Vilja pólskukennslu í grunnskólum 11. september 2004 00:01
Um eitt þúsund íbúa Hafnarfjarðar eru af erlendum uppruna samkvæmt nýlegri skýrslu sem gerð var um þjónustu Hafnarfjarðarbæjar við nýbúa. Flestir þeirra eru frá Póllandi, eða um 120. Við gerð skýrslunnar var meðal annars talað við nýbúa í Hafnarfirði. Hjá þeim Pólverjum sem talað var við kom fram að þeir vildu fá pólskukennslu í grunnskólana og fréttir og upplýsingar á pólsku. Magnús Baldursson, fræðslustjóri Hafnarfjarðar, segir að farið verði yfir niðurstöður skýrslunnar en ekki sé tímabært að segja nákvæmlega hvað verði gert, aðspurður um hvort möguleiki sé á að hefja pólskukennslu í grunnskólunum. Hann segir niðurstöðurnar skoðaðar á skrifstofum bæjarins og metið hvað hægt sé að gera betur, enda sé fjöldi nýbúa um fimm prósent að íbúatölu Hafnarfjarðar. Nú þegar er sérstök móttökudeild fyrir nýbúa í Lækjarskóla og boðið er upp á ódýr íslenskunámskeið fyrir fullorðna. "Við komum til Íslands fyrir fimm árum síðan. Við höfðum enga vinnu heima í Póllandi og vinafólk okkar sem þá var flutt til Íslands bauðst til að hjálpa okkur við að finna vinnu hér og við ákváðum að koma og prufa," segir Ilona Guzewicz en hún býr ásamt eiginmanni sínum og dóttur í Hafnarfirði. Hún segir að í fyrstu hafi þau ekki ætlað að dvelja lengi hér. En þegar þau fóru heim til Póllands í sumarleyfi eftir átta mánaða dvöl sáu þau að ástandið heima fyrir hefði ekkert lagast og ákváðu að vera áfram á Íslandi. Hún segir þau vera ánægð í Hafnarfirði, en þar hafa þau búið frá því þau komu til landsins, en þau keyptu sér íbúð þar fyrir tveimur árum. Hversu langt sé til Póllands segir hún vera helsta ókostinn við að búa á Íslandi. Íslenskuna segir hún vera erfiða en þau reyni hvað þau geti til að læra málið. "Allir hafa verið indælir og ég finn ekki fyrir að komið sé fram við okkur öðruvísi en innfædda. Ég er ánægð með veruna hér og kvarta ekki," segir Ilona.
Fréttir Innlent Mest lesið Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Innlent Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Innlent Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Erlent „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Innlent Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Innlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent Fleiri fréttir „Hverjir tala við mömmu mína?“ Bókun 35 útskýrð á mannamáli Brotist inn í fyrirtæki í miðborginni Slökkvilið í Hafnarfjörð „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Tvær þyrlur út á ystu nöf lögsögunnar Sökk í þriðja sinn í höfninni „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Sjá meira