Börn á biðlista eftir daggæslu 10. september 2004 00:01
Börnum er mismunað þar sem þau komast ekki öll að í daggæslu á frístundaheimilum Íþrótta- og tómstundaráðs Reykjavíkur eftir skóla, segir móðir sjö ára drengs. Æskulýðsfulltrúi ÍTR segir starfsfólk skorta sem sé eina fyrirstaða þess að börnin komist að. "Ég er ekki með heildarsýnina yfir hversu mörg börnin á biðlista eru. Við erum að safa upplýsingunum saman og höfum þær tölur tilbúnar á mánudaginn. Skóladagvistun er ekki lögbundin þjónusta en það er vilji Reykjavíkurborgar að veita hana. Við erum öll að vilja gerð og höfum verið að auglýsa eftir starfsfólki," segir Soffía Pálsdóttir, fræðslustjóri ÍTR. Hún segir erfiðara að fá fólk í hlutastarf í úthverfin heldur en í miðhluta borgarinnar og biðlistar því á nokkrum dagvistunarheimilanna þar. Helga Þórðardóttir, forstöðumaður fjölskylduþjónustunnar Lausnar, segir Reykjavíkurborg gefa út að dagvistun sé í boði fyrir öll börn í Reykjavík en svo sé ekki. "Það var verið að breyta fyrirkomulaginu á daggæslunni. Hún var áður í höndum skólans. ÍTR gerði greinilega ekki ráð fyrir svona mörgum börnum," segir Helga. Ásamt syni hennar hafi um tíu börn úr árgangnum ekki komist að í daggæslu í Víðiseli eftir skóla: "Við fjölskyldan vorum heppin þar sem nágrannakona okkar sem er nýflutt í hverfið bauðst til að hafa drenginn með sínum þar til annað hvort okkar kæmi heim úr vinnunni. Þannig að það er tilviljun að við gátum leyst okkar vanda." Helga segir að hún hafi ekki vitað af breytta fyrirkomulaginu þegar hún staðfesti skólavist sonar síns. Á heimasíðu skólans hafi verið gamlar upplýsingar. Hún hafi því misst af lestinni þar sem umsóknarfresturinn rann út í vor. "Við skólasetningu fengum við að vita að búið væri að loka fyrir inntöku í daggæsluna," segir Helga. Soffía segir mjög margir foreldrar hafi sótt of seint um. "Það er sérstakt að fólk komi 23. ágúst og ætlist til að fá pláss. Flest ef ekki öll börnin sem eru á biðlista sóttu mjög seint um."
Fréttir Innlent Mest lesið Spurningin kom Guðlaugi Þór í opna skjöldu Innlent Þyrlan kölluð út vegna mótorhjólaslyss Innlent Hvað ef það verður skýjað þegar almyrkvinn verður? Innlent Fjögurra tonna eldflaugabútur skall á tunglið á ógnarhraða Erlent Einn í haldi vegna rannsóknar á mannsláti í Kópavogi Innlent Skipverjar gangi örna sinna í vaska og lögmaðurinn fullur Innlent Segir enga tryggingu fyrir annarri þjóðaratkvæðagreiðslu Innlent Barn í hoppukastala sem tókst á loft Innlent Samræði við þrettán ára stjúpsystur ekki nauðgun að mati héraðsdóms Innlent Gætu verið fluttir á brott um borð í Bandero Innlent Fleiri fréttir Einn í haldi vegna rannsóknar á mannsláti í Kópavogi Gæti tekið nokkrar vikur að vísa Bandero-liðum úr landi „Myndi hafa þveröfug áhrif ef seðlabankinn myndi hækka stýrivexti“ Þyrlan kölluð út vegna mótorhjólaslyss Stefnir í stærstu Gleðigöngu sögunnar Banderofólki brottvísað og hinsegin dagar hafnir Gætu verið fluttir á brott um borð í Bandero Segir enga tryggingu fyrir annarri þjóðaratkvæðagreiðslu Hvað ef það verður skýjað þegar almyrkvinn verður? Barn í hoppukastala sem tókst á loft Spurningin kom Guðlaugi Þór í opna skjöldu Alvarlegt að ógna fólki með því sem það heldur að sé vopn Lögreglan mun fylgja skipverjunum úr landi Samræði við þrettán ára stjúpsystur ekki nauðgun að mati héraðsdóms Reyndust báðir vopnaðir, annar hamri og hinn öxi Segir lögreglu skrumskæla gamansöm ummæli Landsmönnum fjölgaði um 1.450 á öðrum ársfjórðungi Ítrekað hjólað á móti umferð Marktækur munur á fylgi Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks Skipverjar gangi örna sinna í vaska og lögmaðurinn fullur Meirihluti telur vexti lækka en undanþágu í sjávarútvegi ólíklega Ný ESB-könnun, skipverjar Bandero og óþarfa hætta á Hverfisgötu Skipverjarnir mega allir fara frá borði Næturborun í sjó lokið og verktakar þakka íbúum þolinmæðina Minnst einn skipverji Bandero má fara frá borði „Við látum ekki fæla okkur aftur inn í skápinn“ „Við erum svolítið strand“ Útsýnispallurinn talinn öruggur þrátt fyrir sprungur Slökktu eld í jepplingi á „örskotsstund“ Ruglingslegar og misvísandi frásagnir um fjóra til fimmtán árásarmenn Sjá meira