Niðurskurður fjár kannski óþarfur 8. september 2004 00:01
Riða kom upp á bænum Árgerði í Skagafirði um mitt sumar. Á bænum er um 500 fjár sem fargað verður á næstu dögum og urðað á Sauðárkróki, að sögn Margrétar Kristjánsdóttur, húsfreyju og skógarbónda í Árgerði. Riða kom áður upp á bænum árið 1985, en það ár og næstu þar á eftir, stakk hún sér líka niður í sumum nærliggjandi bæja. Margrét segir tilgátu Guðbrandar Jónssonar um að riða orsakist af gaseitrun allrar athygli verðar og vonast til að hún verði skoðuð með opnum huga og rannsökuð nánar. Eigi tilgátan við rök að styðjast er í raun óþarfi að farga búfénaði þar sem riða kemur upp, enda orsakast veikin þá af aðbúnaði dýranna en ekki smiti. Halldór Runólfsson, yfirdýralæknir segir hins vegar embættið ekki telja vangaveltur Guðbrandar skoðunar verðar. "Vitað mál er að riða berst með ákveðnu smitefni sem kallað er príon og þannig að þetta á ekki við nein rök að styðjast," segir hann og telur varla að tilvist gastegunda í gripahúsum kalli á frekari rannsókn embættisins. "Mengun ætti þá að koma fram bæði í almennri líðan bæði kinda og svo manna sem gegna fénu." Guðbrandur átelur hins vegar að yfirdýralæknisembættið rannsaki bara skepnurnar sem veikjast en skoði ekki sjálf gripahúsin. "Þeir mæla hvorki gerla, gas, hita, raka eða eitt eða neitt. Það fer enginn inn í húsin þar sem riðuveikin kemur upp," segir hann. Margét Kristjánsdóttir er óánægð með viðbrögð yfirdýralæknisembættisins við tilgátunum um möguleg áhrif gaseitrunar í gripahúsunum á bænum. Hún segir ólíklegt að á bænum verið aftur reynt við sauðfjárrækt eftir að skorið verður niður í kjölfar riðusmitsins. "Það væri þá ekki nema til heimilisnota," sagði hún og er greinilega slegin yfir því að þessi ógæfa ríði nú yfir aftur. "Þetta er náttúrlega hundleiðinlegt og maður hefur hálfpartinn á tilfinningunni að allir séu hræddir við mann." Stutt er á milli bæja í sveitinni og telur hún að einhverjir kunni að óttast að aka yfir kindaskít á veginum og bera þannig smit á aðra bæi. "En ég er eiginlega alveg steinhætt að vera hrædd við skítinn. Allt gengur féð saman í fjöllunum þannig að ef smitið væri í skítnum þá værir riða löngu komin út um allt," segir hún.
Fréttir Innlent Mest lesið Ógn á galakvöldverði og forsetinn fluttur á brott Erlent Bóndakonan á Bakkakoti er látin Innlent Hlaut alvarlega höfuðáverka eftir árekstur á rafhlaupahjóli Erlent Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans Innlent Trump lífgar í gömlum glæðum Falklandseyjastríðsins fyrir konunglega heimsókn Erlent „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Innlent Orbán hættir á þingi Erlent Gerðu árás á mörgum stöðum á sama tíma Erlent Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Innlent Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Innlent Fleiri fréttir Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Bóndakonan á Bakkakoti er látin Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Sjá meira