Salsa, hipp hopp og eróbikk 1. september 2004 00:01
Heimsmeistarinn í hipp hopp dansi og yfirmaður Fitness First-keðjunnar í Bretlandi eru á leiðinni til landsins ásamt fríðu föruneyti til að taka þátt í líkamsræktarráðstefnunni Fitness 2004. "Ráðstefnan er haldin að erlendri fyrirmynd og er hugsuð fyrir almenning," segir skipuleggjandinn Unnur Pálmarsdóttir en Fitness 2004 er haldið í Sporthúsinu á föstudag og laugardag. "Það koma sex erlendir kennarar til landsins en það verður opnunartími með þeim öllum klukkan fimm á föstudaginn. Þar ætlar dj. Páll Óskar að þeyta skífum, glaðningar verða í boði og kennararnir sýna brot af því sem hægt verður að sækja á ráðstefnunni." Á Fitness 2004 er hægt að fá ferskar hugmyndir fyrir haustið. "Þetta verður húllum hæ og fjör," segir Unnur. "Hægt verður að fara í pallaþolfimi, salsa, fönkdans, diskó, eróbikk og kynnast ýmsum nýjungum í hreyfingu," en einnig verður hægt að sækja fyrirlestra í Sporthúsinu um sjúkra- og einkaþjálfun. "Þetta er okkar framtak að mæta kröfum áhugamanna um líkamsrækt og bætta heilsu." Unnur Pálmarsdóttir hóf þolfimiferil sinn með Magnúsi Scheving. "Meistari Magnús er guðfaðir minn í þessu öllu saman. Hann ýtti mér út í þetta og við flökkuðum saman um heiminn í þrjú ár til að kenna á ráðstefnum. Svo fór Magnús í Latabæ sem kunnugt er en ég hélt áfram í þolfiminni." Unnur hefur kennt á líkamsræktarráðstefnum um allan heim síðastliðin sjö ár og var nýlega kosin þolfimikennari ársins í Bretlandi. "Ég hef kynnst mörgum góðum kennurum á flakkinu um heiminn og því tilvalið að sameina þá hér á landi til að kynna nýjungar fyrir Íslendingum," segir Unnur sem vonast til þess að Fitness-ráðstefnan verði haldin einu sinni á ári hér eftir. Áhugasamir um skemmtilega hreyfingu geta keypt staka tíma á Fitness 2004 eða borgað sig inn á ráðstefnuna í heild en góður hópafsláttur er einnig í boði.
Menning Mest lesið Ákváðu að gifta sig strax þegar ljóst var að tíminn væri naumur Lífið Allir komust lifandi út – nema Beethoven Gagnrýni „Þetta var morðingi frænda míns, bara alvöru morðingi“ Lífið „Við erum öll nóg“ Lífið „Ég ræð ferðinni“ Lífið Skagarokk: Boða til Black Sabbath messu og tónlistarveislu næstu helgi Lífið „Sjálfsvinna er ævistarf“ Lífið „Ég hélt að ég væri hreinlega að deyja“ Lífið „Þessi Barbie-dúkka horfir ekki á neitt nema spegilinn“ Lífið Jökull og Telma hvort í sína áttina Lífið Fleiri fréttir Skagarokk: Boða til Black Sabbath messu og tónlistarveislu næstu helgi Ákváðu að gifta sig strax þegar ljóst var að tíminn væri naumur „Við erum öll nóg“ „Sjálfsvinna er ævistarf“ „Þetta var morðingi frænda míns, bara alvöru morðingi“ „Þetta gekk eins og í lygasögu“ „Ég hélt að ég væri hreinlega að deyja“ „Ég ræð ferðinni“ Jökull og Telma hvort í sína áttina „Þessi Barbie-dúkka horfir ekki á neitt nema spegilinn“ „Fegurð er miklu meira en bara útlit“ Stórum hluta kærunnar vísað frá Íslandsvinurinn Gucci Mane frelsissviptur Birnir á lag ársins Myndaveisla: Hundar og kettir velkomnir síðan árið 2017 „Enginn skömm að því að leita sér hjálpar“ Logi Bergmann spyr fjölmiðlamenn spjörunum úr „Ef þú ert að fara í gegnum helvíti haltu bara áfram“ Páskar: Ef þú mættir velja einhvern til að krossfesta Hvað veistu um… Óskarsverðlaunin? Bubbi, kílómetragjaldið og svikin um boltaland fyrir fullorðna Notaði allar líflínurnar í byrjun þáttarins Hlustendaverðlaunin: Kaleo er flytjandi ársins Páskabingó Blökastsins Úr Brúðkaupsþættinum Já yfir í að þjálfa leiðtoga Bubbi með opna hljómsveitaræfingu í Höllinni „Þá spurði ég hann hvort hann vildi gamla eða nýja ísinn“ Mótefni gegn afmennskun og kúgun Var sagt að þetta væri „hluti af því að vera kona“ Hundrað skvísur blómstruðu saman Sjá meira