Vonast eftir bráðabirgðaleyfi 29. ágúst 2004 00:01
Verkefnisstjórn hótelsins í Eimskipafélagshúsinu vonast eftir bráðabirgðaleyfi til að hefja framkvæmdir við bygginguna þann tíunda september ef byggingaleyfi liggur ekki fyrir. Helgi S. Gunnarsson hjá VSÓ ráðgjöf segist ekki telja annað en að slíkt leyfi eigi að vera auðsótt. Byggingafulltrúi hefur bent framkvæmdaaðilum við hótelið á að það sé bannað að hefja framkvæmdir fyrr en byggingaleyfi liggur fyrir. Framkvæmdir áttu að hefjast tíunda september en vonast er eftir bráðabirgðaleyfi svo hægt verði að hefjast handa á tilsettum tíma. Eins og við sögðum frá í gær þarf húsafriðunarnefnd að koma að málinu, enda er ytra byrði hússins friðað sem og innréttingar á annarri hæð hússins. Helgi S. Gunnarsson hjá VSÓ ráðgjöf, sem hefur umsjón með verkefninu fyrir hönd eigenda, segir að ef tilskilin leyfi liggi ekki fyrir tíunda september verði sótt um bráðabirgðaleyfi. Hann segir að verkefnið hafi fengið meðbyr hjá borgaryfirvöldum og yfirstjórn skipulagsmála í borginni. Helgi segir eiganda hússins meðvitaðan um varðveislugildi og verðmæti þess. Ef niðurstaða húsafriðunarnefndar verði sú að ekki megi taka innréttingarnar niður verði skoðað alvarlega að láta þær halda sér og það komi ekki í veg fyrir hótelstarfsemi. Það sama sé að segja um sjö glugga sem gert er ráð fyrir á eldvarnarvegg viðbyggingar hússins frá 1975 sem snýr út í port. Viðbyggingin er hinsvegar einnig friðlýst, enda ekki greint á milli hennar og eldra hússins í friðlýsingu. Helgi segir að ef gluggarnir fáist ekki samþykktir, til að mynda vegna andmæla nágranna, komi það ekki í veg fyrir áætlanir um hótelið þótt notkunargildi hússins kunni að skerðast eitthvað. Sótt var um leyfi til að breyta notkun hússins í vor en ekki hafði verið sótt um byggingaleyfi síðast þegar fréttist fyrir viku. Nágrannar hafa frest til tíunda september til að skila inn athugasemdum vegna notkunarbreytingar jarðhæðar hússins. Ljóst er að bráðabirgðaleyfi til byggingaframkvæmda væri í andstöðu við verklag byggingafulltrúa sem var farið að framfylgja fimmtánda júní.
Fréttir Innlent Mest lesið Íslendingur lést í fallhlífarslysi í Danmörku Innlent Ógn á galakvöldverði og forsetinn fluttur á brott Erlent Bóndakonan á Bakkakoti er látin Innlent „Hann grípur alltaf fram í“: Oddvitar beðnir um að sýna hvor öðrum kurteisi Innlent Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Innlent Ungi Íslendingurinn var nemandi í fallhlífaskóla Innlent Árásin til marks um aukna hörku vestanhafs Erlent Myndir: Upplausn á blaðamannamóttöku Erlent Hlaut alvarlega höfuðáverka eftir árekstur á rafhlaupahjóli Erlent Talinn ætla að ráðast á Trump og fleiri háttsetta Erlent Fleiri fréttir Muni vitanlega gera kröfu um sæti í meirihluta Segir Miðflokkinn selja snákaolíu Ungi Íslendingurinn var nemandi í fallhlífaskóla „Hann grípur alltaf fram í“: Oddvitar beðnir um að sýna hvor öðrum kurteisi Íslendingur lést í fallhlífarslysi í Danmörku Samfylkingin stærst á Akureyri Skotárás á kvöldverði Bandaríkjaforseta og klakstöðvar lúsmýsins Oddvitar í Kópavogi um nýjustu könnun Ölvun, vopnaburður og áfengishnupl Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Bóndakonan á Bakkakoti er látin Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Sjá meira