Sjóðurinn gæti orðið gjaldþrota 27. ágúst 2004 00:01
Ef húseigendur kjósa í ríkum mæli að endurfjármagna lán sín hjá bönkunum í ljósi betri kjara gæti Íbúðalánasjóður orðið gjaldþrota að mati forstöðumanns Hagfræðistofnunar Háskólans. Hann ráðleggur Íbúðalánasjóði að bjóða endurfjármögnum húsnæðislána í takt við það sem gerist nú á frjálsum markaði. Bankarnir bjóða viðskiptavinum sínum mjög góð kjör á húsnæðislánum. Það fylgir hins vegar sá böggull skammrifi að lántakendur taka á sig uppgreiðsluáhættuna. Kjósi þeir að greiða upp lánið og endurfjármagna það áður en lánstíma lýkur standa þeir frammi fyrir því að bankarnir rukka þá um ávöxtunarkröfu bréfanna að einhverju marki. Þeir njóta því ekki til fulls þeirra vaxtalækkana sem geta orðið í framtíðinni. Það er þessi áhætta sem Íbúðalánasjóður hefur tekið fyrir viðskiptavini sína. Kjósi meirihluti þeirra nú að greiða upp lán sín hjá Íbúðalánsjóði með nýju láni frá bönkunum getur það komið sjóðnum í erfiða stöðu. Tryggvi Þór Herbertsson, forstöðumaður Hagfræðistofnunar Háskóla Íslands, segir að ef þetta verði í miklum mæli, kannski í hundruðum milljörðum talið, þá verður misvægi á milli þeirra lána sem Íbúðalánasjóður býður upp á og þeirra vaxtataekna sem þeir fá inn. Það þýðir aukin rekstraráhætta fyrir sjóðinn. Aðspurður hvort Íbúðalánasjóður gæti orðið gjaldþrota segir Tryggvi að hann sé í þokkalegri stöðu í dag en það gæti breyst fljótt. Hann ráðleggur sjóðnum að bjóða húseigendum með eldri lán að endurfjármagna þau í samræmi við þau vaxtakjör sem nú bjóðast. Hallur Magnússon, sviðsstjóri hjá Íbúðalánsjóði, segir sjóðinn þola um eitt hundrað milljarða uppgreiðslu án þess að haggast. Hann segir ekki standa til að bjóða eldri lántakendum ný kjör. Ef mikið verði um uppgreiðslur á húsbréfum á næstu vikum og mánuðum komi það ekki mikið við sjóðinn því hann þoli slíkar greiðslur upp á rúmlega hundrað milljarða, og vel það. Hallur segir það ekki hagkvæmt að greiða upp nema tiltölulega lítinn hluta húsbréfa og gerir hann ráð fyrir því að skynsemi fólks komi í veg fyrir að það framkvæmi slíkt. Ef það gerist þyrfti Íbúðalánasjóður að hækka vaxtaálagið til að standa undir mögulegum mismun á inngreiðslum og útgreiðslum. Það myndi hins vegar ekki gerast fyrr en eftir hundrað milljarða og því ekki skaða sjóðinn í sjálfur sér.
Fréttir Innlent Mest lesið Alvarlegt slys á starfsmönnum á Íslandsmeistarmóti í rallycross Innlent Lést við tökur á Emily in Paris Erlent Grunur um brot gegn fleiri börnum Innlent Níu sviptir leyfi meðan á annað hundrað kvartana hafa borist Innlent Ferðamaður neitaði að borga reikninginn og lét öllum illum látum Innlent Leiðist „linnulaust væl” Íslendinga yfir réttu málfari Innlent Eigandi Sante segir málið gjörunnið: „Frelsið sigrar alltaf að lokum” Innlent Stungumanni í Bankastrætismálinu aftur stungið í steininn Innlent Gríðarlegt magn myndefnis til skoðunar hjá lögreglu Innlent „Forsetinn var aldrei óviðeigandi við neinn“ Erlent Fleiri fréttir Algjört hrun í fálkastofninum Þétting byggðar hafi ekki slegið í gegn Jökulhlaupið í hægum vexti Nýi brennsluofn göngugarpsins mættur á Sólheima Grunur um brot gegn fleiri börnum Grunur um brot gegn öðru barni, alvarlegt slys og tíðindi á Menningarnótt Alvarlegt slys á starfsmönnum á Íslandsmeistarmóti í rallycross Gríðarlegt magn myndefnis til skoðunar hjá lögreglu Leiðist „linnulaust væl” Íslendinga yfir réttu málfari Eigandi Sante segir málið gjörunnið: „Frelsið sigrar alltaf að lokum” 99 ára gömul tombóla á Borg í Grímsnesi og engin núll Vínsali býst við ákæru, kúnnalisti Epstein og stemming í bænum Reiðhjólabændur með vaktað hjólastæði í Traðarkoti til miðnættis Níu sviptir leyfi meðan á annað hundrað kvartana hafa borist „Beint frá býli dagurinn“ býður landsmönnum í heimsókn Útihátíð fyrir ungmenni gekk eins og í sögu Ferðamaður neitaði að borga reikninginn og lét öllum illum látum Stungumanni í Bankastrætismálinu aftur stungið í steininn Sjö ára hlaupari kemur hópnum yfir línuna í sjötta maraþoninu á morgun Skoða að flýta aðgerðum í húsnæðismálum til að ná tökum á verðbólgunni „Versti tíminn, allra versti tíminn“ Gamall þristur strand vegna skorts á bensíni Hátt í tveggja tíma veðmálaauglýsing í boði Rúv Hraðbankinn ófundinn, hungursneyð og skólar hefjast Farþegar látnir sofa á gólfinu á hóteli í Keflavík Grunaður hraðbankaþjófur í gæslu eftir allt saman Þurfa að bíða lengur eftir að komast í Sundhöllina Bíll konunnar sást á upptöku Þáttastjórnendum X-sins sagt upp Líta málið „mjög alvarlegum augum“ Sjá meira