Cherie Blair á Íslandi 26. ágúst 2004 00:01
Cherie Blair, eiginkona Tonys Blairs forsætisráðherra Breta, kom hingað til lands í dag ásamt fjögurra ára syni þeirra hjóna. Hún flytur erindi á málstofunni Konur, völd og lög sem fram fer á morgun, og segist sjálf eiga í fullu fangi með að takast á við hlutverk móðurinnar, eiginkonunnar og lögfræðingsins. Ekki var það einkaþota sem flutti Cherie Blair yfir hafið, eins og Bill Clinton, heldur lét hún sér nægja áætlunarflug Icelandair. Yngsti sonur Blair hjónanna, hinn fjögurra ára gamli Leo, er í för með móður sinni, sem bað um að engar myndir væru teknar af drengnum. Cherie ætti ekki að eiga í vandræðum með að tala út frá persónulegri reynslu í erindi sínu á málstofunni á morgun. Hún er einn þekktasti lögmaður Bretlands, rekur lögmannsstofu sem sérhæfir sig í mannréttindamálum, er forsætisráðherrafrú og fjögurra barna móðir. Cherie segist ætla að ræða um jafnvægið milli vinnu og einkalífs og hvernig eigi að ná því réttu. Hún segir þó að oftast mistakist fólki og einnig henni. Stíf dagskrá bíður Cherie. Málstofa á morgun og svo mun hún opna listasýningu á Akureyri á laugardag ásamt breska sendiherranum. Á sunnudag fær hún tækifæri til að kynnast landinu ögn betur í hans fylgd, áður en hún heldur heim á mánudag.
Fréttir Innlent Mest lesið Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Innlent Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Innlent Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Erlent „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Innlent Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Innlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent Fleiri fréttir „Hverjir tala við mömmu mína?“ Bókun 35 útskýrð á mannamáli Brotist inn í fyrirtæki í miðborginni Slökkvilið í Hafnarfjörð „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Tvær þyrlur út á ystu nöf lögsögunnar Sökk í þriðja sinn í höfninni „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Sjá meira