Gölluð bygging og ónotuð í áratug 26. ágúst 2004 00:01
Tugmilljóna króna viðbygging við Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri hefur að mestu staðið ónotuð í áratug. Vegna hönnunargalla er hún nánast ónothæf til þess sem hún var upphaflega ætluð. Heilbrigðisráðherra segist ekki vilja draga neinn til ábyrgðar, en segir vandamálið brátt úr sögunni. Í nýlegri stjórnsýsluendurskoðun Ríkisendurskoðunar segir frá makalausu klúðri í húsnæðismálum Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri síðastliðinn áratug. Árið 1994 var tekin fyrsta skóflustungan að viðbyggingu við sjúkrahúsið, sem vegna fjárskorts var þó ekki tekin í notkun fyrr en árið 2000 og þá aðeins ein hæð af fjórum. Hinar þrjár hæðirnar hafa enn ekki verið teknar í notkun og vegna hönnunargalla eru þær ónothæfar til þess sem þær voru ætlaðar. Í skýrslunni, þar sem talað er um tugmilljóna króna sóun á almannafé, segir að þrátt fyrir að enn ein nefndin hafi verið skipuð liggi ekkert fyrir um framhaldið. Jón Kristjánsson heilbrigðisráðherra, segir að hann hafi skipað nefnd árið 2002 til að koma með tillögur um endurhönnun á þeim þremur hæðum sem eru óinnréttaðar. Honum hafi fundist að við svo búið mætti ekki standa. Hann segir auðvitað mjög óæskilegt að byggja og láta húsnæði standa ónotað. Hann vill þó ekki draga neinn til ábyrgðar í málinu. Þá gat hann ekki sagt til um hve miklum peningum hefði verið eytt af almannafé. Hann vill ekki dæma um hvort heilbrigðisráðuneytið beri ábyrgð í málinu, aðalatriðið sé að það sé komið á fullt skrið.
Fréttir Innlent Mest lesið Alvarlegt slys á starfsmönnum á Íslandsmeistarmóti í rallycross Innlent Lést við tökur á Emily in Paris Erlent Níu sviptir leyfi meðan á annað hundrað kvartana hafa borist Innlent Grunur um brot gegn fleiri börnum Innlent Ferðamaður neitaði að borga reikninginn og lét öllum illum látum Innlent Eigandi Sante segir málið gjörunnið: „Frelsið sigrar alltaf að lokum” Innlent Leiðist „linnulaust væl” Íslendinga yfir réttu málfari Innlent Stungumanni í Bankastrætismálinu aftur stungið í steininn Innlent Gríðarlegt magn myndefnis til skoðunar hjá lögreglu Innlent „Forsetinn var aldrei óviðeigandi við neinn“ Erlent Fleiri fréttir Segir lánveitendur með belti, axlabönd og í björgunarbát en neytendur áhættuna Jökulhlaupið í hægum vexti Nýi brennsluofn göngugarpsins mættur á Sólheima Grunur um brot gegn fleiri börnum Grunur um brot gegn öðru barni, alvarlegt slys og tíðindi á Menningarnótt Alvarlegt slys á starfsmönnum á Íslandsmeistarmóti í rallycross Gríðarlegt magn myndefnis til skoðunar hjá lögreglu Leiðist „linnulaust væl” Íslendinga yfir réttu málfari Eigandi Sante segir málið gjörunnið: „Frelsið sigrar alltaf að lokum” 99 ára gömul tombóla á Borg í Grímsnesi og engin núll Vínsali býst við ákæru, kúnnalisti Epstein og stemming í bænum Reiðhjólabændur með vaktað hjólastæði í Traðarkoti til miðnættis Níu sviptir leyfi meðan á annað hundrað kvartana hafa borist „Beint frá býli dagurinn“ býður landsmönnum í heimsókn Útihátíð fyrir ungmenni gekk eins og í sögu Ferðamaður neitaði að borga reikninginn og lét öllum illum látum Stungumanni í Bankastrætismálinu aftur stungið í steininn Sjö ára hlaupari kemur hópnum yfir línuna í sjötta maraþoninu á morgun Skoða að flýta aðgerðum í húsnæðismálum til að ná tökum á verðbólgunni „Versti tíminn, allra versti tíminn“ Gamall þristur strand vegna skorts á bensíni Hátt í tveggja tíma veðmálaauglýsing í boði Rúv Hraðbankinn ófundinn, hungursneyð og skólar hefjast Farþegar látnir sofa á gólfinu á hóteli í Keflavík Grunaður hraðbankaþjófur í gæslu eftir allt saman Þurfa að bíða lengur eftir að komast í Sundhöllina Bíll konunnar sást á upptöku Þáttastjórnendum X-sins sagt upp Líta málið „mjög alvarlegum augum“ Hella áfenginu niður og hringja í foreldra Sjá meira