Vilja konu í ráðherrastól 25. ágúst 2004 00:01 "
Framsóknarkonur vilja fljótlega sjá breytingu í æðstu stöðum flokksins verði hlutur kvenna fyrir borð borinn," segir Una María Óskarsdóttir, formaður Landssambands framsóknarkvenna: "Það skiptir máli að fleiri konur innan flokksins verði ráðherrar." Rúmlega 130 framsóknarmenn mættu á fund Landssambandsins til að mótmæla bakslagi í jafnréttismálum flokksins. Framsóknakonur segjast hafa sofið á verðinum þegar ákveðið var að Siv Friðleifsdóttir stigi úr stóli umhverfisráðherra. Sigrún Magnúsdóttir, fyrrum borgarfulltrúi, opnaði fund framsóknarkvenna með baráttuávarpi. Hún sagði formann, varaformann og ritara flokksins skipa forystusveit Framsóknarflokksins. "Við látum ekki strákshvolpa lítilsvirða Framsóknarflokkinn og störf okkar. Né látum við þá vanvirða stefnumálefni flokksins og grafa þannig undan fylgi flokksins." Sigrún blés á orð Guðjóns Ólafs Jónssonar, varaþingmann flokksins, sem sagði í pisti á vefriti óánægju kvenna stafa af litum frama þeirra innan flokksins. Hann hafi sjálfur leitað eftir framgangi sér til handar í þremur kjördæmum. Í ályktun fundarins segir meðal annars að framsóknarkonur sætti sig ekki við annað en að vera metnar að verðleikum og að hafa sömu möguleika og karlar til áhrifa og valda innan flokksins og úti í þjóðfélaginu. Framsóknarkonur sem Fréttablaðið ræddi við horfa margar til fyrirhugaðra breytinga í ráðherraliði Halldórs Ásgrímssonar á kjörtímabilinu. Magnús Stefánsson, þingmaður sem aðild á í jafnréttisnefnd flokksins, og Valgerður Sverrisdóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, segja ekkert loforð liggja fyrir um að sú breyting verði konu til framdráttar. Of snemmt sé að spá um slíkt. Haukur Logi Karlsson, formaður Sambands ungra framsóknarmanna, segir mikla óánægju innan flokksins undanfarna daga hafa endurspeglast á fundinum: "Nú er það forystunnar og flokksins að bregðast við þessari óánægju."
Fréttir Innlent Mest lesið Íslendingur lést í fallhlífarslysi í Danmörku Innlent Ógn á galakvöldverði og forsetinn fluttur á brott Erlent Ungi Íslendingurinn var nemandi í fallhlífaskóla Innlent „Hann grípur alltaf fram í“: Oddvitar beðnir um að sýna hvor öðrum kurteisi Innlent Bóndakonan á Bakkakoti er látin Innlent Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Innlent Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Innlent Sást til einstaklings ofan í gili við Háafoss Innlent Árásin til marks um aukna hörku vestanhafs Erlent Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Innlent Fleiri fréttir Sást til einstaklings ofan í gili við Háafoss Skrítið að dómsmálaráðherra blandi sér í umræðuna Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Stál í stál og sammála um fátt á fundi um ESB Muni vitanlega gera kröfu um sæti í meirihluta Segir Miðflokkinn selja snákaolíu Ungi Íslendingurinn var nemandi í fallhlífaskóla „Hann grípur alltaf fram í“: Oddvitar beðnir um að sýna hvor öðrum kurteisi Íslendingur lést í fallhlífarslysi í Danmörku Samfylkingin stærst á Akureyri Skotárás á kvöldverði Bandaríkjaforseta og klakstöðvar lúsmýsins Oddvitar í Kópavogi um nýjustu könnun Ölvun, vopnaburður og áfengishnupl Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Bóndakonan á Bakkakoti er látin Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sjá meira