Innlent

Rigningin í nótt glæðir laxveiðina

Formaður Stangaveiðifélags Reykjavíkur, Bjarni Ómar Ragnarssonsegir, segir að rigningin, sem féll í nótt, glæði laxveiðina. Vatnsbúskapur í laxveiðiám hefur verið dapurlegur í sumar. Miklir þurrkar hafa komið niður á laxveiðinni, í sumar, þótt sumar ár hafi gefið ágætlega af sér. Þurrkarnir hafa gert það að verkum að lítið vatn er í mörgum ám, og laxinn auk þess latur við að taka vegna sólar og hita. Bjarni segir að þótt ekki hafi mikið rignt í nótt, lífgi það uppá árnar. Hann segir að þeir í félaginu hafi verið að rifja upp rigningar í sumar. Hafi þeir komist að því að rignt hafi um 12. júní og tvo daga um verslunarmannahelgina. Síðan hafi ekki rignt aftur fyrr en í nótt. Laxveiðivertíðin er nú óðum að styttast. Fyrstu ánum verður lokað um mánaðamótin, og svo hverri af annarri, fram í miðjan september þegar allri laxveiði verður hætt. Sjóbirting verður þó hægt að veiða til 20. október.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×