Óverjandi að innheimta skólagjöld 25. ágúst 2004 00:01
Björgvin G. Sigurðsson, þingmaður Samfylkingarinnar segir óverjandi að innheimta skólagjöld í nýjum sameinuðum háskóla Tækniháskóla Íslands og Háskólans í Reykjavík, ef af sameiningu þeirra verður, enda hafi ekki verði innheimt skólagjöld í Tækniháskólanum til þessa. Með því að innheimta skólagjöld yrði farið bakdyramegin við að koma á skólagjöldum í ríkisreknum háskólum. Nú standa yfir viðræður um sameiningu Tækniháskóla Íslands og Háskólans í Reykjavík. Tækniháskólinn er ríkisskóli og hefur því ekki innheimt skólagjöld, en það gerir Háskólinn í Reykjavík. Björgvin telur að skilyrði fyrir sameiningu skólanna sé að þar verði ekki innheimt skólagjöld af tækninámi sem Tækniháskólinn hafi til þessa boðið upp á. Hann segir að ef nemendur Tækniháskólans nú og í framtíðinni þurfi að greiða skólagjöld sé um hreina mismunun að ræða þar sem tækninám eins og kennt sé í Tækniháskólanum sé ekki til boða annars staðar. Það væri þá eini kosturinn fyrir fólk sem vildi læra tæknifræði að fara í hinn einkarekna skóla og borga fyrir það há skólagjöld. Fyrir þetta segir Björgvin að þurfi að girða áður en menn haldi lengra í að sameina skólana og menntamálaráðherra þurfi að taka allan vafa af um það að ekki sé verið að fara bakdyraleið að því að innleiða skólagjöld í ríkisháskólana. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, menntamálaráðherra, segir nýjan sameinaðan háskóla spennandi kost og telur eðlilegt að hann geti innheimt skólagjöld. Hún sjái fyrst og fremst fyrir sér stóran og öflugan háskóla sem eigi eftir að skila miklu fyrir íslenskt samfélag. Hún segir þó viðræðurnar ennþá formlegar. Það sé þó ekki ólíklegt ef þetta verði sjálfseignarstofnun að muni verða greidd skólagjöld.
Fréttir Innlent Mest lesið Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Innlent Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Innlent Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Erlent „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Innlent Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Innlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent Fleiri fréttir „Hverjir tala við mömmu mína?“ Bókun 35 útskýrð á mannamáli Brotist inn í fyrirtæki í miðborginni Slökkvilið í Hafnarfjörð „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Tvær þyrlur út á ystu nöf lögsögunnar Sökk í þriðja sinn í höfninni „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Sjá meira