Eini skriðjökull landsins 24. ágúst 2004 00:01
Reykjarfjarðarjökull sem gengur niður úr Drangajökli á Vestfjörðum hefur skriðið á annað hundrað metra á síðustu þremur árum. Hann er eini jökull landsins sem skríður fram. Einn helsti jöklafræðingur landsins segir að búast megi við að jökullinn skríði nokkur hundruð metra á þessum áratug. Fyrir þremur árum hóf Reykjafjarðarjökull að skríða fram. Ragnar Jakobsson, sem búið hefur í Reykjarfirði áratugum saman, segir jökulinn hafa skriðið fram um eina 70 metra í fyrra og líklega svipað í ár, jafnvel heldur meira. Alls hefur jökullinn skriðið hátt í tvö hundruð metra á þessum þremur árum. Ragnar segir ásjónu jökulsins hafa breyst mikið í tímans rás. Þetta skrið er afar sérstakt. Oddur Sigurðsson jarðfræðingur segir þetta vera eina jökulinn á landinu sem hann viti til um að skríði fram. Hann segir að svona skrið eigi sér stað með 60 til 70 ára millibili, alveg óháð veðurfari. Ástæðan er ókunn og segir Oddur þetta eina af óráðnu gátum jöklafræðinnar. Oddur segir að búast megi við áframhaldandi skriði jökulsins í þrjú til fjögur ár til viðbótar. Fyrir sjötíu árum hafi jökullinn skriðið fram um 700-800 metra en erfitt sé að spá fyrir um vegalengdina sem hann skríði í þessari lotu. Jökullinn sé kominn á annað hundrað metra og ef hann haldi áfram í nokkur ár til viðbótar geti hann bætt nokkuð hundruð metrum við.
Fréttir Innlent Mest lesið „Ætlum að sækja að olíufélaginu sem heldur þessari slátrun gangandi“ Innlent Krefst sýknu í öllum ákæruliðum: „Hún ætlaði aldrei að snúa aftur“ Innlent Telur aðgerðarsinna hér heima vinna með Watson Innlent Spiluðu þjóðsönginn á meðan hvalurinn var dreginn á land Innlent Ýtukarl á áttræðisaldri er enn að bæta vegina Innlent Stefnt á kappræður milli utanríkisráðherra Innlent „Farðu nú að hætta þessu þvaðri viðrinið þitt“ Innlent Hótanir nægi ekki til að bregðast við utan landhelgi Innlent Fara fram á sextán ár yfir Ming: „Ásetningur hennar var kaldur og grimmur“ Innlent Vigdís kíkti í kaffi til Kristrúnar Innlent Fleiri fréttir Spiluðu þjóðsönginn á meðan hvalurinn var dreginn á land Gómaður með tæp sextíu kíló af amfetamíni og „bleikt kókaín“ Níu í haldi fyrir að smygla yfir hundrað kílóum af kókaíni í sjókistu Stefnt á kappræður milli utanríkisráðherra Traust til íslenskra yfirvalda sagt fara vaxandi Synjun Suðurlandsbrautar gæti tafið fyrstu lotu Borgarlínu „Þú verður að hafa stjórn á tækninni sem þú nýtir“ Krefst sýknu í öllum ákæruliðum: „Hún ætlaði aldrei að snúa aftur“ Aðalmeðferð að ljúka í Edition málinu og sextán ára fangelsis krafist Hótanir nægi ekki til að bregðast við utan landhelgi Fara fram á sextán ár yfir Ming: „Ásetningur hennar var kaldur og grimmur“ Dræm laxveiði: „Menn spá ekki nema spáin sé góð“ Tvö hundruð prósent fleiri tilkynningar um vændi „Ætlum að sækja að olíufélaginu sem heldur þessari slátrun gangandi“ Öryggisbrestur hjá héraðssaksóknara til Persónuverndar Lýsa yfir þungum áhyggjum af notkun gervigreindar við tónlistarsköpun Ýtukarl á áttræðisaldri er enn að bæta vegina Með kylfur og mikið magn vímuefna Telur aðgerðarsinna hér heima vinna með Watson Segir ekki tilefni til að endurskoða lyfjaakstursmál síðustu ára Vigdís kíkti í kaffi til Kristrúnar Varamaður á Ísafirði verður sveitarstjóri Súðavíkur Orðinn Háskóli Íslands á Hólum Gagnrýnir að skipinu hafi ekki verið vísað frá Svavar Pálsson ráðinn sveitarstjóri Húnabyggðar „Ekkert sérstaklega ánægð“ þegar hún sá hnífinn Margrét Kristín skipuð lögreglustjóri á Suðurnesjum „Við verðum bara að horfast í augu við smæð okkar“ Lokar fyrir aðgengi að Reykjafossi og Fossalaug Gagnrýnir Landhelgisgæsluna vegna Bandero og ýtukarl á áttræðisaldri Sjá meira