Innlent

Clinton á ferðinni

Bill Clinton, fyrrverandi Bandaríkjaforseti, er í einkaheimsókn hér á landi. Hann fór víða í dag, skoðaði sig um á Þingvöllum, hitti fólk á förnum vegi, ræddi við ráðamenn og fékk sér pylsu á Bæjarins bestu.  Stundvíslega klukkan níu í morgun lenti Boeing 757 þota Bill Clintons og föruneytis á Reykjavíkurflugvelli. Óvissa ríkti um hvar Clinton myndi lenda, og raunar hefur hálfgerð óvissa einkennt dagskrá forsetans fyrrverandi í allan dag. Eftir stuttan stans í bandaríska sendiráðinu við Laufásveg spjallaði hann stuttlega við fréttamenn. Aðspurður um tilgang ferðar sinnar til Íslands sagði Clinton að kona sín, Hillary, væri hér á landi merð sendinefnd öldungadeildar Bandaríkjanna til að kynna sér vandamál tengd hlýnun jarðar. Hann sjálfur væri hins vegar á leiðinni til Írlands að árita bækur og hann hafi ákveðið að sækja Hillary hingað. Deginum hérlendis ætluðu þau að verja í að skoða sig um og heimsækja forsætisráðherrrann, forsetann og utanríkisráðherrann og myndu svo fljúga til Dublin í kvöld. Þegar Clinton var spurður hvað hann ætlaði að ræða um við íslensku ráðamennina svaraði Clinton hvaðeina sem þeir vildu ræða. „Þetta er að hluta til kurteisisheimsókn. Við ræðum líklega fortíðina því við gerðum margt saman þegar ég var í embætti en við tölum líklega einnig um málefni líðandi stundar. Ég læt þá þó ráða ferðinni því maður getur gert það þegar maður er ekki lengur í embætti,“ sagði Clinton. Eftir stuttan fund með sendiherra Bandaríkjanna og stutt spjall við fréttamenn hélt Clinton til Þingvalla. Þar naut Clinton leiðsagnar Sigurðar Líndals sem fræddi Clinton um sögu staðarins, þær hefðir sem þar hefðu myndast og hvaða þýðingu Þingvellir hefðu fyrir Íslendinga. Clinton virtist ánægður með að hafa ákveðið að breyta dagskrá sinni til að geta komið við í þjóðgarðinum. Hann sagði staðinn vera mjög fallegan og að hann hafi alltaf langað til að koma þangað. Hann væri lögfræðingur að mennt og kenndi lögfræði í háskóla og hafi því lesið og lært mikið um Þingvelli og mikilvægi Íslands í sögu þingræðisins. „Tilgangurinn með stjórnarskrá Bandaríkjanna var að draga úr valdníðslu. Við lærðum um það hvernig þingið hér setti nógu mörg lög til að koma á skipulagi en ekki svo mörg að fólkið yrði fyrir valdníðslu,“ sagði Clinton. „Ísland og saga þess hefur því alltaf verið fyrirmynd fyrir mig um hvernig frjálst land á að miklu leyti að vera. Ég hef fengist við stjórnsýslu meirihluta ævi minnar og lít svo á að stjórnvöld verði að geta gert það sem þarf að gera fyrir heildina, en um leið að forðast valdníðslu. Íslenska Alþingið er að miklu leyti upphaf baráttunnar gegn því og því nýt ég þess að koma hingað,“ sagði Clinton og bætti við að það væri magnað að sjá hvar meginlandsflekarnir mættust. Hann kvaðst jafnframt vilja koma aftur hingað til lands að kynna sér hveri, heitar lindir og náttúru landsins betur.  Eftir stuttan stans á Þingvöllum lá leiðin aftur til Reykjavíkur en þá lá ekki einu sinni fyrir hvert. Bílalest forsetans brunaði í miðbæinn þar sem við tók göngutúr sem kom fylgdarliði, lífvörðum og öðrum í galopna skjöldu. Clinton skoðaði styttu Jóns Sigurðssonar og kom við í bókabúð sem snarfylltist þegar í stað af fólki. Því næst hélt heil hersveit forvitinna honum í verslunina Kirsuberjatréð þar sem hann keypti marglitar skálar úr pappamassa. Clinton var ákaflega afslappaður, heilsaði upp á fólk, spjallaði við það og sat fyrir á myndum. Starfsmannastjóri forsetans fyrrverandi var hins vegar ákaflega óhress með þessa framvindu mála, að því að virtist, gekk á milli fréttamanna, hreytti í þá og hrinti. Clinton hélt ótrauður áfram för á Listasafn Reykjavíkur þar sem hann virti fyrir sér verk Goya og Errós. Þegar hér var komið sögu var klukkan orðinn meira en tvö og Clinton væntanlega svangur. Hann stoppaði því hjá Bæjarins bestu áður en hann hélt til næsta fundar í bílalest sinni.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×