Uppfærslan boðin innanlands 18. ágúst 2004 00:01
Microsoft á Íslandi ætlar að bjóða SP2, nýjustu hugbúnaðarviðbótina við Windows XP stýrikerfið, sem innanlandsniðurhal þannig að tölvunotendur þurfi ekki að greiða fyrir niðurhal erlendis frá. Uppfærslan sem nefnist SP2 er í heild yfir 200 megabæt að stærð þó ekki þurfi allir að hlaða henni niður í heild sinni. Gísli R. Ólafsson, sérfræðingur hjá Microsoft á Íslandi, segir verið að leggja lokahönd á tæknileg atriði þannig að sjálfvirkar uppfærslur stýrikerfisins (Windows update) sæki uppfærsluna á miðlara hér á landi. "Þetta ætti að vera orðið klárt á föstudaginn, í síðasta lagi á mánudag," sagði hann. Sumir tölvunotendur sem kveikt hafa á sjálfvirkum stýrikerfisuppfærslum kunna þó þegar að vera orðnir varir við að tölvur séu farnar að kalla á niðurhalið, en útgáfa SP2 fyrir Windows XP Home útgáfuna var komið á Windows Update í gær. Útgáfa fyrir XP Pro kemur ekki fyrr en á miðvikudag í næstu viku. SP2 er stærsta hugbúnaðarviðbót Microsoft síðan Windows XP stýrikerfið var gefið út, en bótinni er ætlað að plástra öryggisveilur og bæta Windows XP stýrikerfið á margvíslegan annan máta. Til dæmis fylgir viðbótinni eldveggur sem sambyggður stýrikerfinu auk smábreytinga á Internet Explorer sem auka eiga öryggi og þægindi notenda á netinu. Til dæmis verður eftir að uppfærslan er sett upp hægt að slökkva á "pop-up" auglýsingagluggum sem spretta upp af sumum vefsíðum. Þá bætist við innbyggð öryggismiðstöð, eða <I>Windows Security Center<P>, sem vakir yfir vírusvörnum, eldvegg og öðrum öryggisstillingum tölvunnar. Þýðingum á SP2 uppfærslunni er að ljúka hjá Microsoft og verður væntanlega komin sem uppfærsla í Windows update eftir tæpar 3 vikur, að sögn Gísla R. Ólafssonar. Notendum íslenskrar útgáfu stýrikerfisins er engu að síður sagt óhætt að setja SP2 strax upp, án þess að það trufli virkni þess. Fregnir hafa borist af því að sjálfgefnar öryggisstillingar sem fylgja SP2 uppfærslunni hafi truflað skráaskiptiforrit (svokölluð P-to-P forrit) og einhverjar samtengingar tölva, til dæmis tölvuleiki sem leiknir eru á netinu, en leiðbeiningar um lausnir á slíkum vandkvæðum mun vera að finna á vef Microsoft.
Fréttir Innlent Mest lesið Þekktur rabbíni sakar Íslending um gyðingahatur Innlent 51 prósent sé nóg Innlent Komin með skýra mynd á fjölskylduharmleik í Kópavogi Innlent Snör viðbrögð björguðu ellefu ára dreng þegar hoppukastali tókst á loft Innlent Fjölskyldan með á þriðja kíló af kókaíni Innlent Svandís segir nei Innlent „Fagmenn“ smíðuðu og flugu sjálfsprengidrónanum í Leipzig Erlent Kristrún sat fyrir svörum og ræddi við hlustendur Innlent Óttast valdaframsal til Evrópusambandsins Innlent „Það bara fannst ekki neitt“ Innlent Fleiri fréttir Viðarplata eina útsýnið og hávaði frá morgni til kvölds Lokanir á Arnarnesvegi og við Sundagarða Varað við vindhviðum á Vestfjörðum Orð Jóns Sigurðssonar eigi við um baráttuna í dag Áhættumat byggir ekki lengur bara á vísindalegu mati Tíu sakborningar í fjárkúgunarmáli og íbúar ósáttir í Hamraborg „Það bara fannst ekki neitt“ Óttast valdaframsal til Evrópusambandsins Gísli Rafn vill leiða stofnun atvinnuveganna Svandís segir nei Héraðssaksóknari með meint kynferðisbrot leikskólastarfsmanns á sínu borði Komin með skýra mynd á fjölskylduharmleik í Kópavogi Yfirfullir fangaklefar til trafala í innbrotahrinunni Bændur kynna ESB skýrslu og fullir fangaklefar Venjuleg sólgleraugu duga ekki til þann 12. ágúst Fjölskyldan með á þriðja kíló af kókaíni Íslendingur í Danmörku fékk ekki að vera á kjörskrá Þekktur rabbíni sakar Íslending um gyðingahatur 51 prósent sé nóg Bein útsending: Kynna skýrslu um áhrif ESB á bændur Óvenju annasamur júlí á fæðingardeild Landspítala Yngsta barnið sem fékk boð um pláss fimmtán mánaða Á annað hundrað leituðu til HSU yfir verslunarmannahelgina Snör viðbrögð björguðu ellefu ára dreng þegar hoppukastali tókst á loft Neitaði að gefa upp persónuupplýsingar Þjónusta Verifone og Rapyd lá niðri Hnífjafnt í nýrri könnun Kristrún sat fyrir svörum og ræddi við hlustendur Ekki á dagskrá að opna bókhaldið Vilja hefja einn stærsta flugvöll landsins til vegs og virðingar Sjá meira