Skólasókn 16 ára aldrei betri 18. ágúst 2004 00:01
Skólasókn 16 ára ungmenna hefur aldrei verið betri hér á landi en á síðasta ári. Heldur fleiri stúlkur en drengir eru í skóla og er munurinn mestur á Austurlandi. Þetta er meðal þess sem kemur fram í nýjum tölum frá skólamáladeild Hagstofunnar. Þar kemur fram að um 92 prósent 16 ára ungmenna stundi nám og er það um einu prósentustigi hærra en á árinu 2002. Þegar skólasóknartölur eru skoðaðar með tilliti til kynskiptingar má sjá að skólasókn 16 ára pilta á landsvísu er 90% en 16 ára stúlkna 94%. Munur á skólasókn kynjanna við 16 ára aldur er hverfandi á höfuðborgarsvæðinu og á Suðurlandi. Á öðrum landssvæðum er hann hins vegar umtalsverður stúlkum í vil, hæstur fjórtán prósentustig á Austurlandi. Þar fýsir pilta síður í skóla en stúlkur. Þá kemur einnig fram að hlutfall þeirra sem fara beint í framhaldsskóla eftir grunnskólanám er nú 91 prósent og hefur aukist um sex prósentustig frá árinu 1992. Strax að loknu fyrsta ári framhaldsskólans dregur hins vegar mjög úr skólasókn. Árið 2003 var hún 82% við 17 ára aldur og 74% við 18 ára aldur. Við 20 ára aldur er hún svo komin niður í 52%. Þá var brottfall nemenda úr framhaldsskólum, frá haustinu 2002 til haustsins 2003, 19,3% sem jafngildir því að um 4.100 nemendur hafi hætt eða tekið sér hlé frá námi. Brottfall er meira meðal karla en kvenna og meira í starfsnámi en í bóknámi. Brottfall var rúmum þremur prósentustigum hærra fyrir fimm árum, eða 22,3%.
Fréttir Innlent Mest lesið Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Innlent Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Innlent Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Erlent „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Innlent Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Innlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent Fleiri fréttir „Hverjir tala við mömmu mína?“ Bókun 35 útskýrð á mannamáli Brotist inn í fyrirtæki í miðborginni Slökkvilið í Hafnarfjörð „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Tvær þyrlur út á ystu nöf lögsögunnar Sökk í þriðja sinn í höfninni „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Sjá meira